Pistlar og pólitík
Árni Rúnar Þorvaldsson
Árni Rúnar Þorvaldsson

03.05.2010 Pistlar og pólitík

Ha!

 

Í ráðstjórnarríkjunum sálugu var það regla fremur en undantekning að einræðisherrarnir hagræddu sannleikanum sér í hag – eða létu jafnvel skrifa söguna upp á nýtt. Gerska ævintýrið lét ekki smáatriði eins og sannleika, sanngirni eða réttlæti trufla sig þegar sagan var endurskrifuð. Þessar vinnuaðferðir dugðu þó ekki til að halda uppi glansmyndinni af ævintýrinu því allir vita hver örlög draumaríkisins í austri urðu.

Undirrituðum varð hugsað til þessara aðferða þegar ég las grein eftir frambjóðenda VG sem skipar þriðja sæti á lista þeirra í sveitarstjórnarkosningum. Greinin er um margt ágæt og athyglisverð en eitt atriði verður því miður til þess að draga úr trúverðugleika þessarar annars ágætu greinar. Það var þegar frambjóðandinn segir að undirritaður, þáverandi forseti bæjarstjórnar og þáverandi aðstoðarmaður Lúðvíks Bergvinssonar, hafi ekkert haft við það að athuga að stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs ákvað að framkvæmdastjóri þjóðgarðsins yrði staðsettur í 101 Reykjavík. Undirritaður tjáði sig bæði í ræðu og riti, þar sem hann gagnrýndi harðlega ákvörðun stjórnarinnar auk þess að koma mótmælum á framfæri við Umhverfisráðherra og þingmenn kjördæmisins. Hvort þessi mótmæli hafi verið aumingjaleg þjónkun eða linkindarleg verða aðrir auðvitað að dæma um. Því er það einfaldlega rangt sem haldið er fram í greininni, að undirritaður „hefði nákvæmlega ekkert við það að athuga að svo væri málum háttað“ – og leiðréttist það hér með. Enda hváði undirritaður bara ”ha“, þegar hann las þessa hugmyndaríku söguskoðun greinarhöfundarins.

Við skulum vona að um saklausan misskilning sé að ræða hjá greinarhöfundi frekar en að hann hafi tileinkað sér gömlu aðferðirnar úr austri sem lýst var hér í upphafi. Sjálfur trúir undirritaður að um misskilning eða upplýsingaskort sé að ræða.

 

Árni Rúnar Þorvaldsson

Bæjarfulltrúi og skipar 1. Sæti á lista Samfylkingarinnar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica