Sterkt samfélag
Unnur Brá Konráðsdóttir
Undanfarnir mánuðir hafa um margt verið erfiðir fyrir íslensku þjóðina. Við hrun bankanna féll sú ímynd að Ísland væri „stórasta land í heimi“ og að Íslendingar væru almennt séð hæfileikaríkari og betri en aðrir. Dómharka þjóðarinnar í eigin garð er mikil og hleypur með ýmsa í gönur. Vissulega var margt sem fór aflaga í samfélaginu síðastliðin ár en neikvæðni og hatur út í náungann eru ekki gildi sem æskilegt er að einkenni íslenskt samfélag.
Horfum fram á við
Við verðum að gefa sjálfum okkur þá gjöf að leyfa okkur að hugsa til framtíðar. Hugsa um það hvernig samfélag við viljum búa börnum okkar og barnabörnum. Er það samfélag þar sem einstaklingurinn fær að blómstra og umgjörð ríkisins er slík að hugmyndir íbúanna nái flugi? Eða er það samfélag reiði, neikvæðni og mótmæla við heimahús? Þrátt fyrir allt eigum við mikil sóknarfæri sem felast í því hversu ung og vel menntuð þjóðin okkar er, að ógleymdum þeim miklu náttúruauðlindum sem landið og fiskimiðin okkar geyma.
Að ná jarðsambandi
Náttúra Íslands hefur að undanförnu minnt á hver það er sem ræður. Það eina sem við getum gert er að reyna að aðlaga okkur þeim aðstæðum sem hún býður hverju sinni. Þetta hefur íslenska þjóðin vitað í gegnum aldirnar og þótt draumurinn um alheimsyfirráð hafi um stund villt okkur sýn þá byggjum við á sterkum grunni og því munum við standa atburði liðinna missera af okkur. Verkefnin sem fylgja eru erfið og að sumu leyti ógnvekjandi en samhent viðbrögð samfélagsins alls við þeirri vá sem steðjar að íbúum Eyjafjalla segja mér að Íslendingar kunna þrátt fyrir allt enn að standa saman. Að þessu leyti hefur Eyjafjallajökull gefið okkur jarðsamband að nýju. Samfélagið er sterkt og á þeirri staðreynd munum við byggja blómlega framtíð.




Skrifa athugasemd