Pistlar og pólitík
Þórbergur Torfason
Þórbergur Torfason

02.05.2010 Pistlar og pólitík

Atvinnumál

Þórbergur Torfason í 3. sæti lista VG

 

Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2010 hljótum við frambjóðendur að líta um öxl, vega og meta fortíðina og draga síðan lærdóm af henni, án þess er til lítils að snúa höfðinu í þá átt.

Að sönnu má segja að okkar sveitarfélag hafi sloppið býsna vel frá manngerðum náttúruhamförum undanfarinna ára. Það kemur helst til af því að við vorum utan snertingar ofsagróðahyggju-hugsjóna þess tíma.  Þó hafa afleiðingar græðginnar sett mark sitt á hugarfar, gildismat og framtíðarsýn íbúa hér.

Við hljótum að leiða hugann að því í hvaða stöðu okkar undirstöður eru. Hvernig er staða landbúnaðar í sveitarfélaginu, ferðaþjónustunnar eða sjávarútvegsins? Getum við styrkt frekar stoðir þessara atvinnugreina og þá hvernig? Hver er skuldastaða þessara greina?

Sveitarstjórn í jafn litlu samfélagi og okkar ber ekki mikið úr býtum í slag við hin stærri sveitarfélög nema með samstilltu átaki. Þess vegna ber okkur öllum sem einu að gæta okkar í orði og æði, stilla loforðaflaumnum í hóf en vera jafnframt raunsæ.

Við byggjum á góðum grunni, ekki bara frá síðasta kjörtímabili eins og mér sýnist sumir prédika eins og hinn eina sannleika, við þurfum að leita allt aftur til síðustu aldar til að finna þann grunn sem við í dag byggjum okkar sveitarfélag á.

Ferðaþjónustan styrkist með hverju ári, hvernig er stuðningi við hana háttað? Hvernig getur sveitarfélagið komið til móts við atvinnugrein sem byggist upp með jafn miklum hraða og ferðaþjónustan? Þessu þarf auðvitað að svara.

Við skulum hafa það hugfast að við lifum í hjarta Vatnajökulsþjóðgarðs, stofnunar sem við hljótum að gera miklar kröfur til.

Ég minnist þess þegar ég átti orðastað við ráðuneytisstjóra Umhverfisráðuneytis varðandi þáttöku landeigenda í þessum þjóðgarði. Við hittumst í Þórbergssetri og þar sem ég taldi mig heimamann fannst mér eðlilegt að ég spyrði manninn frá sjónarhóli heimamanns. Strax þá fannst mér augljóst að við þyrftum að halda vöku okkar og láta ekki hina alræmdu stjórnsýslu jarða okkur varðandi málefni þjóðgarðsins.

Það sem síðar kom í ljós var aumingjaleg þjónkun allra sveitarstjórna innan þjóðgarðsins þegar stjórn og framkvæmdastjórn var skipuð. Það að yfirstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs skuli sitja í 101 Reykjavík er skandall, skandall aldarinnar ef við lítum til okkar sveitarfélags. Af hverju varð svo? Jú það er nokkuð augljóst. Bara sem lítið dæmi. Forseti sveitarstjórnar sveitarfélagsins Hornafjörður, þáverandi aðstoðarmaður hins hressa fjárglæfraþingmanns Lúðvíks Bergvinssonar hafði nákvæmlega ekkert við það að athuga að svo væri málum háttað. Ég segi líka bara “ha” ef einhver sitjandi sveitarstjórnarfulltrúi reynir að segja mér að hann hafi reynt að malda í móinn. Í stað þess að við sem getum með sanni kallað okkur hjarta þjóðgarðsins höfum meira vægi í framvindu málefna garðsins, höfum við lítið sem ekkert um þau að segja.

Nýlega kom fram ályktun frá sveitarstjórn “Norður-Þing” (hvaða sveitarfélag innangarðs er fjær Jöklinum) um að leggja beri núverandi stjórn niður en byggja á svæðisstjórnum sveitarfélaganna. Undir þessa kröfu tek ég og jafnframt vil ég að stjórnina skipi einn frá hverju sveitarfélagi og sú stjórn skipi eða ráði framkvæmdastjóra sem búi og starfi innan þjóðgarðs.

 

Hugmyndir VG byggja á varfærni en framsækni í atvinnuuppbyggingu. Við viljum horfa fram á við og fjárfesta í störfum frekar en fasteignum.

Við eigum fasteignir sem líta ber til t.d. félagsheimilin í sveitunum.

Ég lít á það sem sjálfsagðan hlut að í sveitarfélaginu Hornafirði rísi vegleg gestastofa sem þjóni öllum gestum þjóðgarðsins. Það er hins vegar mikið glæfraspil að byrja á að hanna og reisa eitt stykki hús, hús sem enginn veit í rauninni hvernig á að líta út eða hvaða hlutverki það eigi í raun og veru að gegna.

Þess vegna geri ég það að tillögu minni að við færum jöklasýninguna sem er í gamla kaupfélagshúsinu að Hrollaugsstöðum, þróum þar gestastofu í þeim anda sem við viljum sjá þess háttar miðstöð rísa og byggjum síðan á þeirri reynslu til framtíðar en ekki annarra fyrirmynd. Þetta getum við hæglega gert án mikils tilkostnaðar en þó skapað þarna störf í þjónustu við ferðafólk, heimafólk og fræðafólk. Í tengslum við slíkan rekstur mætti stofna setur í jöklafræðum, efla rannsóknir á gróðurfari á landi sem kemur undan jökli og ýmislegt fleira gæti komið til.

Með því að færa jöklasýninguna úr kaupfélagshúsinu, opnast jafnframt möguleiki á að nýta það húsnæði í öðrum tilgangi innan þéttbýliskjarnans á Höfn.

 

Þórbergur Torfason. Skipar 3. sæti á lista VG í komandi Sveitarstjórnarkosningum
Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica