Inga Rún bíður sig fram í 2. sæti fyrir VG
Ert þú pólitísk? Þetta er spurning sem ég hef fengið eftir að ég bauð mig fram í annað sæti á framboðslista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Ég, eins og svo margir aðrir, hef í gegnum árin haldið að pólitíkin væri eingöngu fyrir útvalda. Fyrir fólk sem hafði alist upp við pólitískar umræður yfir kvöldmatnum. Fyrir fólk sem hafði margra ára háskólanám að baki. Fyrir fólk sem „fullorðnaðist“ í gagnfræðaskóla og virtist aldrei hafa verið ungt og leikið sér. Og svo framvegis.
En með hækkandi aldri og auknum þroska meðfylgjandi áttaði ég mig á því að pólitíkin er órjúfanlegur hluti af því lífi og umhverfi sem við lifum og hrærumst í.
Að „vera pólitísk“ er í mínum huga einfaldlega að hafa áhuga á umhverfinu; áhuga á því hvernig skólamálum er háttað, hvernig aldraðir hafa það, hvernig atvinnumálin eru í sveitarfélaginu og svo mætti lengi telja.
En hver er ég? Ég heiti Inga Rún og er Guðjónsdóttir. Dóttir Guðjóns Hjartarsonar og Valborgar Einarsdóttur. Ég fæddist árið 1973 á Garðsbrúninni og ólst upp á Höfn til átta ára aldurs. Í dag eru rúm tvö ár síðan ég flutti aftur HEIM og líður afskaplega vel hér.
Mér finnst mjög mikilvægt að njóta lífsins, að taka þátt og vera virk.
Lífsskoðanir mínar fara mjög vel við stefnu Vinstri grænna:
Að fara vel með umhverfið
Að allir hafi sama rétt án tillits til kynferðis, kynhneigðar, trúarbragða, litarháttar og uppruna
Að treysta byggð um land allt
Að laun séu ákvörðuð með tilliti til þess sem leyst er af hendi – ekki hvort karl eða kona vinnur verkið
Að atvinnulíf þróist í átt til aukinnar fjölbreytni
Listinn er auðvitað ekki tæmandi.
Ég hlakka til að taka þátt í þessu starfi og held áfram með ráð Gunnu ömmu í farteskinu: „Mundu svo eftir því Inga Rún mín, að halda áfram að brosa“.
Inga Rún Guðjónsdóttir
Skipar 2. sæti fyrir VG




Skrifa athugasemd