Sjálfstæðismenn samþykkja framboðslista
Á fundi fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Austur-Skaftafellssýslu sem haldinn var mánudaginn 5. apríl var lögð fram tillaga að framboðslista sjálfstæðismanna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 29. maí n.k.
Almenn ánægja var með framlagða tillögu og var listinn samþykktur einróma. Björn Ingi Jónsson er nýr oddviti sjálfstæðismanna, en Halldóra B. Jónsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi starfa. Mikil endurnýjun er á listanum og fundarmenn almennt ánægðir með þáttöku og áhuga yngra fólks. Kjörnefndin hefur lagt áherslu á að fá fólk til starfa sem endurspeglar sem breiðastan grunn samfélagsins sem við búum í.
Mikill hugur er í sjálfstæðisfólki fyrir komandi kostningar að styrkja stöðu okkar og koma meira að stjórnun þessa ágæta sveitarfélags okkar.
Listann skipa:
- Björn Ingi Jónsson
- Guðrún Ása Jóhannsdóttr
- Valdemar Einarsson
- Lovísa Rósa Bjarnadóttir
- Grétar Már Þorkelsson
- Halldóra Guðmundsdóttir
- Björn Þórarinn Birgisson
- Herdís Waage Ingólfsdóttir
- Jóhannes Óðinsson
- Maríanna Jónsdóttir
- Unnsteinn Guðmundsson
- Laufey Guðmundsóttir
- Sigurður Guðmundsson
- Halldóra Bergljót Jónsdóttir
Sjálfstæðisfélag A-Skaft




Skrifa athugasemd