Samfylkingin stillir upp
Nú styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar en þær fara fram laugardaginn 29. maí nk. Undirbúningur kosninganna er kominn á fullt skrið hjá Samfylkingunni á Hornafirði. Almennir félagsmenn mættu á félagsfund í gær, þar sem ákveðið var að viðhafa uppstillingu við val á framboðslista fyrir sveitarstjórnakosningar í vor.
Stjórn félagsins var falið að skipa uppstillingarnefnd sem fær það verkefni að bera fram tillögu að framboðslista fyrir almennan félagsfund.
Á fundinum í gær tilkynnti Árni Rúnar Þorvaldsson, núverandi oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Hornafjarðar og formaður bæjarráðs, að hann gæfi kost á sér til þess að leiða lista Samfylkingarinnar í komandi kosningum. Einnig tilkynntu þær Guðrún Ingimundardóttir, bæjarfulltrúi, og Matthildur Ásmundardóttir, varbæjarfulltrúi, að þær gæfu kost á sér til áframhaldandi starfa í bæjarstjórn Hornafjarðar fyrir Samfylkinguna.
Í síðustu bæjarstjórnarkosningum náði Samfylkingin góðri kosningu, fékk tvo fulltrúa kjörna í bæjarstjórn og hefur verið í meirihlutasamstarfi með Framsóknarflokki á yfirstandandi kjörtímabili. Á fundinum kom fram að Samfylkingarfólk stefnir óhikað að því að styrkja stöðu flokksins í bæjarstjórn á næsta kjörtímabili með því að bjóða fram öflugan framboðslista með skýra og sterka málefnastöðu að leiðarljósi.
Stjórn Samfylkingarinnar á Hornafirði




Skrifa athugasemd