Áætlun um endurreisn
Opnir fundir Samfylkingarinnar um allt land.
Samfylkingin stendur nú fyrir fundaherferð um allt land undir yfirskriftinni: Áætlun um endurreisn. Á fundunum flytja þing – og sveitarstjórnarmenn Samfylkingarinnar stutt ávörp og svara spurningum um þau stóru og vandasömu mál sem verið er að leiða til lykta í ríkisstjórn og á Alþingi þessar vikurnar. Á Hornafirði verður fundur haldinn miðvikudaginn 24. júní kl. 20:00 í Nýheimum. Frummælendur á þeim fundi verða Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi og þingmennirnir Oddný Harðardóttir, Róbert Marshall og Guðbjartur Hannesson. Fundarstjóri verður Guðrún Ingimundardóttir, bæjarfulltrúi.
Eins og allir vita þá stendur ríkisstjórn Íslands frammi fyrir stærri efnahagslegum vandamálum en nokkur ríkisstjórn hefur gert og margvíslegar aðgerðir eru nauðsynlegar til þess að bregðast við. Þær verða ekki allar sársaukalausar. Því er mikilvægt að landsmönnum gefist tækifæri til þess að eiga milliliðalaus samskipti við þingmenn, taki þátt í umræðum um þessi mikilvægu mál og komi sjónarmiðum sínum á framfæri.
Endurskoðun fiskveiðstjórnunarkerfisins
Eitt mál í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Samfylkingar og VG hefur vakið töluverða athygli á Hornafirði – og reyndar á fleiri stöðum – en það eru áform ríkisstjórnarinnar um fyrningu aflaheimilda í tengslum við endurskoðun fiskveiðiststjórnunarkerfisins. Það mál hefur m.a. verið rætt í bæjarráði og bæjarstjórn auk þess sem bæjarráð hefur fundað með útgerðarmönnum í byggðalaginu. Aðalástæðan fyrir því að þetta tiltekna mál hefur hlotið svo mikla umfjöllun innan sveitarstjórnar er auðvitað sú að sjávarútvegurinn er burðarstoðin í atvinnulífi Hornfirðinga. Allar breytingar á þeim vettvangi hljóta því að kalla á miklar umræður á Hornafirði – sem og í öðrum sambærilegum sveitarfélögum.
Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, hefur nú ákveðið að skipa starfshóp um endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar. Helstu verkefni starfshópsins felast í að skilgreina helstu álitaefni sem eru fyrir hendi í fiskveiðistjórnuninni, vinna nauðsynlegar greiningar og setja fram valkosti um leiðir til úrbóta þannig að greininni séu sköpuð góð rekstrarskilyrði til langs tíma, en jafnframt að sátt náist um stjórn fiskveiða. Fulltrúa í starfshópnum eiga allir flokkar á Alþingi auk Landssambands íslenskra útvegsmanna, Landssambands smábátaeigenda, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Samtaka fiskvinnslustöðva og Starfsgreinasambands Íslands. Að auki skipa Sjómannasamband Íslands, Farmanna – og fiskimannasamband Íslands og VM, Félag vélstjóra og málmtæknimanna einn sameiginlegan fulltrúa í starfshópinn.
Það er því sérstakt ánægjuefni að Guðjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvestukjördæmi, formaður fjárlaganefndar og væntanlegur formaður starfshóps um endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar, skuli vera gestur okkar Hornfirðinga. Þannig gefst Hornfirðingum kærkomið tækifæri til þess að ræða þetta mikivæga mál samfélagsins við væntanlegan formann þess starfshóps sem kemur til með að fara yfir þessi mál, auk þess að ræða þau við þingmenn Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Það er gríðarlega mikilvægt að þingmenn – og þá ekki síst þeir sem eiga að fjalla sérstaklega um sjávarútveginn – átti sig á mikilvægi málsins fyrir sveitarfélög eins og Hornafjörð og að allar ákvarðanir verði að taka að vandlega yfirlögðu ráði. Hvet ég því alla sem eiga heimangengt þennan dag til þess að mæta á fundinn og koma skoðunum sínum á framfæri.
Árni Rúnar Þorvaldsson
Höf. er formaður bæjarráðs Hornafjarðar




Skrifa athugasemd