Pistlar og pólitík
Sigurður Ingi Jóhannsson
Sigurður Ingi Jóhannsson

25.04.2009 Pistlar og pólitík

Ágætu Austur Skaftfellingar – Gleðilegt sumar.

Úrslit kosninganna í dag skipta sköpum fyrir íslenska þjóð. Í þeim kjósum við um það, í hvernig samfélagi við viljum búa. Hvernig við tryggjum best að komandi kynslóðir njóti sömu tækifæra og lífsgæða og við höfum búið við á undanförnum áratugum.
Á síðustu árum höfum við Framsóknarmenn mætt mótlæti. Það er ekki í okkar þjóðarsál að gefast upp. Í erfiðleikum felast áskoranir - og nú reynir á.
Gleymum ekki hver stefna okkar er og gildismat. Manngildi ofar auðgildi, jafnræði þegnanna, einstaklings frelsi til athafna, samvinna og skynsemi.

Við höfum fulla trú á að við getum unnið okkur fljótt út úr vandanum. Lausnir okkar byggja á að tryggja heimilum og fyrirtækjum eðlilegan rekstrargrunn. Virkjum þann kraft sem í okkur Íslendingum býr. Leiðin út úr efnahagsvandanum felst í frumkvæði og dugnaði hinna mörgu. Þannig er samfélag tækifæranna – það samfélag sem við viljum búa okkur sjálfum og börnunum okkar.

 

Kosningabarátta okkar Framsóknarmanna er eitt af því sem skilur okkur frá hinum flokkunum. Við höfum lagt okkur fram að setja fram raunhæfar tillögur til lausnar á efnahagsvanda heimila og fyrirtækja – vanda þjóðarinnar.

Við höfum gert okkur far um að tala hreint út um efnahagsvandann. Þjóðin á heimtingu á því. Við leggjum ríka áherslu á að nýjum tímum og nýju fólki fylgi gagnsæi og traust. Við verðum að hafa pólitískt hugrekki til þess að grípa til nauðsynlegra aðgerða, þannig að kreppan dragist ekki á langinn. Við höfum lagt fram ítarlegar tillögur í þeim efnum. Almenn leiðrétting lána um 20% er lykillinn að því að snúa vörn í sókn.
Við höfum ekki verið með yfirboð eða árásir á aðra flokka eða frambjóðendur. Við trúum því að einlægni og heiðarleiki okkar muni skila okkur mestu.

 

Kosningabaráttan er nú komin á lokastig. Margir hafa lagt hönd á plóg. Eins og áður er það gæfa flokksins að það starf er unnið af óeigingirni og fórnfýsi. Án slíks vinnuframlags væri vonlaust að heyja kosningabaráttu.  Ég þakka öllum þeim fjölda einstaklinga sem lagst hafa á árarnar með okkur.  Það hefur verið gaman að vinna með ykkur og ég hlakka til að vinna með Austur Skaftfellingum eftir kosningar.

 

Framsókn fyrir okkur öll – X B fyrir þjóðina.

Gleðilegan kjördag !

 

Sigurður Ingi Jóhannsson,

oddviti Framsóknarmanna í Suðurkjördæmi

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica