Sæll Árni frambjóðandi
Vinstri mönnum er gjarnt að tala um sátt í sjávarútvegi og auðlind þjóðarinnar. Auðvita væri það mikil heill fyrir alla sem að sjávarútvegi standa ef það næðist sátt um hann en þú veist það jafn vel og ég að þegar auðlind er takmörkuð verður sennilega aldrei hægt að skipta henni þannig að allir verði sáttir. Við skulum þó reyna að gera okkar besta. Ef stefna ykkar jafnaðarmanna verður höfða að leiðarljósi eftir kosningar verður óhagkvæmni og óánægja meiri. Mín tilfinning er sú þegar ég les ykkar stefnu í sjávarútvegsmálum er að þetta sé lítið eða ekkert ígrundað og sé sett fram til að ná í einhver atkvæði á stór Reykjavíkursvæðinu. Ef það er raunin er að há alvarlegt mál að spila með fjöregg þjóðarinnar í pólitískum tilgangi.
Landsbyggðar skattur, auðlindagjald eða hvað menn vilja kall þetta leiguliða kerfi sem þið viljið koma á er ekki rétta aðferðin til þess að fá menn til að gang vel um auðlindirnar. Þessa aðferð er búið að prófa í austur Evrópu og við vitum hvernig það gekk. Ef þú eða ég vitum ekki hvort við fáum að umgangast þá auðlind sem okkur er treyst fyrir frá ári til árs verðu brottkast og smáfiska dráp miklu meira en við höfum nokkurn tíman séð áður. Þeir sem hæst hafa haft um galla núverandi kerfis og eru til sjós eru þeir sem verst hafa gengið um auðlindina. Þetta vitum við sem stundum þessa vinnu og erum í sambandi við fjölmarga í þessar grein.
Hvers vegna hafið þið Samfylkingarmenn ekki talað um skatt á aðrar auðlindir en sjávarútveg. Það hlýtur að vera krafa okkar sem búum hér á köldu svæði og þið skattleggið heita vatnið ef ykkur er svona mikið í mun að skattleggja auðlindir. Það er stefna okkar Framsóknarmanna að allar auðlindir sitji við sama borð og að þeim sem nýta þær á landsbyggðinni verði ekki gert erfiðara fyrir en öðrum. Hvað segir jafnaðarstefnan um það? Það myndi trúlega heyrast í elítunni fyrir sunnan ef þið mynduð setja fram þá hugmynd að skattleggja þær auðlindir sem flæða undir þeim þó henni finnist í lagi að setja gjald á auðlindina sem er fyrir utan ströndina.
Leitt þótti mér að þú skildir fara að blanda meirihluta samstarfinu hér á Hornafirði í þessi skrif okkar. Þar hefur ekkert borðið á milli og spurningum þínum um hverjum ég treysti og hverjum ekki skulum við svara á öðrum vettvangi. Málefna leg skoðanaskipti og sameiginlegar niðurstöður núverandi meirihluta tala sínu máli um okkar ágæta samstarf.
Setjum X við B
Ásgrímur Ingólfsson
Höfundur er formaður atvinnumálanefndar á Hornafirði og skipar 13. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi




Skrifa athugasemd