Pistlar og pólitík
Bergur Sigurðsson
Bergur Sigurðsson
Skipar 4. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi.

25.04.2009 Pistlar og pólitík

Sjálfbær sjávarútvegsstefna

Með vistvænni fiskveiðum getum við bæði skapað atvinnu í byggðunum landsins og sparað dýrmætan gjaldeyri sem í dag er sólundað í olíuinnkaup fyrir orkufrekan stórskipaflota. Kyrrstæð veiðarfæri valda ekki nándar nærri eins miklu raski á botnlífi og skrapandi botntroll og vörpur gera. Með aukinni sókn smábáta á grunnslóð með línu, færi og net, má samhliða skertu aðgengi þungra veiðarfæra styrkja stoðir smábátaútgerðar og efla atvinnu í byggðarlögum landsins svo nemur hundruðum starfa. Ákvörðun um létt veiðarfæri til verndar sjávarbotni er ákvörðun sem mun nýtast langt inn í framtíðina og koma komandi kynslóðum til góða. Veiðistjórnun sem stuðlar að þessu er til lengri tíma líkleg til þess að leiða af sér sjálfbæran útveg þar sem fæst góður afli án þess að gengið sé á stofnana eða skilyrði þeirra skert. Aukin smábátaútgerð fellur því á margan hátt afar vel að markmiðum um sjálfbæra þróun, smábátaútgerðin styður við þá þrjá þætti sem hugtakið sjálfbærni felur í sér þ.e. efnahag, samfélag og umhverfi fyrir okkur og komandi kynslóðir.

Kvótann til þjóðarinnar
Við ráðstöfun aflaheimilda þarf að tryggja réttlátt kerfi sem þar sem þjóðin nýtur auðlindanna. Stjórnvöld hafa setið aðgerðarlaus undir áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna sem finnur að núverandi kerfi þar sem framseljanleg og veðsetjanleg réttindi til auðlindarinnar fela í sér mismunun. Kerfi sem býður upp á það að sægreifinn flytji á brott eða selji kvótann og byggðin blæði er ekki kerfi sem búandi er við. Kvótans er víða sárlega saknað á Suðurnesjunum og var meira líf hér áður við bryggjur flestra byggðalaga. VG vill nýta þau tækifæri sem gefast til þess að ná auðlindum hafsins aftur til þjóðarinnar. Að sama skapi vill flokkurinn tryggja að öðrum auðlindum landsins, s.s. jarðhita og fallvötnum, verði ráðstafað með hófsamlegum hætti með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi en lendi ekki á sömu villigötu og fiskistofnarnir. Sjávarútvegurinn er skuldsettur og ljóst að aflaheimildir verða ekki innkallaðar með offorsi og hasti en til þess að til réttlátari ráðstöfunar geti komið þarf með hófsömum hætti að innkalla aflaheimildir og úthluta í framhaldinu réttlátara aðgengi að auðlindinni. VG hafa lagt fram tillögur um 20 ára innköllunartíma með innbyggðri aðlögun fyrir núverandi handhafa heimildanna. Við endurúthlutun yrði þriðjungi ráðstafað til sveitarfélaga, þriðjungur færi á opinberan leigumarkað þar sem veiðiheimildir væru leigðar út til sex ára í senn og síðasti þriðjungurinn yrði boðin þeim sem innkallað hefði verið frá gegn kostnaðargjaldi á grundvelli afnotasamnings til sex ára. Þó flokkurinn hafi sett fram þessa tilteknu tillögu að leið til innköllunar og endurráðstöfunar á aflaheimildum þá er hann reiðubúin til þess að skoða aðrar leiðir að sama markmiði um réttlátari skiptingu auðlindarinnar.

Umhverfisvænn gjaldeyrissparnaður
Með stórum vélum sem draga þung veiðarfæri þarf umtalsvert meiri olíu fyrir hvert tonn af veiddum fiski en til þarf í útgerð léttari veiðarfæra. Þar fer gjaldeyrir á glæ sem nær væri að nýta til annarra hluta en að brenna olíu með tilheyrandi losun gróðurhúsalofttegunda. Kemur þar inn á stóra málið, gróðurhúsaáhrifin, en hagkerfi olíunnar er einmitt hagkerfið sem samfélag mannanna þarf að losna út úr ef árangur á að nást loftslagsmálum. Sjávarútvegsstefna VG er því á margan hátt dæmi um ábyrga stefnu að sjálfbærri atvinnugrein þar sem tryggt er að þjóðin njóti ávaxta eigin auðlinda.

Bergur Sigurðsson,
skipar 4. sæti á  lista VG í Suðurkjördæmi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica