Pistlar og pólitík
Björk Pálsdóttir
Björk Pálsdóttir
Varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

24.04.2009 Pistlar og pólitík

Stefna Sjálfstæðisflokksins í sjávarútvegsmálum.

 

Ágætu íbúar

Á Höfn er sjávarútvegur undirstöðu atvinnugreinin og  ein helsta forsenda þess að hér sé blómlegt mannlíf.

Ef hugmyndir vinstri manna um kvótaskerðingu ná fram að ganga er útlit fyrir að margir útgerðaraðilar sem hafa byggt upp sín fyrirtæki meðal annars með því að kaupa báta og kvóta munu annað hvort hætta í greininni eða verða gjaldþrota.  Formaður bæjarráðs Árni Rúnar virðist ekki hafa miklar áhyggjur af því.

Sjálfstæðisflokkurinn er eini raunhæfi valkosturinn gegn vinstri stjórn því hann gengur óbundinn til kosninga. Hann er með skýra stefnu í sjávarútvegsmálum og ályktun landsfundar má lesa á heimasíðu flokksins á xd.is.

 Sjálfstæðisflokkurinn vill :

  • ekki framselja auðlindir sjávar til ESB.
  • að hvalveiðar verði áfram leyfðar í íslenskri lögsögu.
  • að útgerðaraðilar eigi ekki yfir höfði sér eignarupptöku.
  • afnema sértæka skattheimtu í sjávarútvegi.
  • efla menntun í fjölbreytilegum greinum sjávarútvegsins.
  • greina tækifæri atvinnugreinarinnar til frekari sóknar.

Það var mikið áfall fyrir þessa atvinnugrein þegar þorskveiðar voru skertar um þriðjung. Efnahagsástandið núna er ekki auðvelt umhverfi til fyrirtækjareksturs. Því verðum við að styðja við sjávarútveg en það er sú atvinnugrein sem hefur skapað Íslendingum mestar gjaldeyristekjur í gegnum tíðina.

Göngum hreint til verks – horfum til framtíðar og setjum X við D á laugardag.

 

Björk Pálsdóttir  varabæjarfulltrúi  Sjálfstæðisflokksins.  

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica