Pistlar og pólitík
Unnur Brá Konráðsdóttir
Unnur Brá Konráðsdóttir

23.04.2009 Pistlar og pólitík

Hamingjuóskir til Hornfirðinga

Lagfærð

 

Rétt er að óska Hornfirðingum til hamingju með glæsilega sundlaugarbyggingu sem vígð er í dag. Það þekkja allir gildi þess fyrir samfélagið að hafa aðgang að góðum íþróttamannvirkjum. Í kringum sundlaugarnar, vellina, og íþróttahúsin byggist jafnan upp öflugt félagsstarf, heilbrigt líferni og betra og öflugra mannlíf.

Sveitarfélagið Hornafjörður er einmitt samfélag sem hefur svo margt upp á að bjóða. Það er sterkt samfélag sem byggir á sterkum grunni sjávarútvegsins. Sveitarfélög sem byggja á sjávarútvegi ættu að vera sterk á meðan vel er haldið á sjávarútvegsmálum. Því eru hugmyndir um fyrningu kvóta í raun aðför að sveitarfélögum eins og Hornafirði og í alla staða ótrúlegt að stjórnmálaflokkarnir á vinstri vængnum leggi slíkt til. Þá vil ég víkja að Vatnajökulsþjóðgarðinum, sem í mínum huga er frábært tækifæri til atvinnuuppbyggingar á þessum slóðum. Það er því í raun bæði óskiljanlegt og klaufalegt að hafa ekki alla starfsmenn sem að því verkefni koma, staðsetta í nágrenni við þjóðgarðinn. Í mínum huga er bæði sjálfsagt og eðlilegt að uppbygging og yfirstjórn Vatnajökulþjóðgarðs verði flutt strax úr hundrað og einum til Hornafjarðar. Það er réttlætismál sem þingmenn kjördæmisins eiga að beita sér fyrir og það mun ég gera. Gleðilegt sumar. Unnur Brá Konráðsdóttir Höfundur skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica