Pistlar og pólitík
Hamingjuóskir
Í dag vígja Hornfirðingar nýja og glæsilega sundlaug. Enginn þarf að efast um að þessi nýja aðstaða er styrkur fyrir sveitarfélagið og íbúa þess. Mannvirki af þessu tagi efla íþróttastarf, tómstundir og draga að ferðamenn. Ekki er hægt að meta til fjár hvað þessi aðstaða kemur til með að gefa íbúum og gestum, bæði sem uppspretta gleði, leikja og til heilsueflingar.
Við óskum Hornfirðingum innilega til hamingju með nýju sundlaugina og vitum að hún verði ykkur til farsældar inn í framtíðina.
F.h. Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi,
Sigurður Ingi Jóhannsson
Eygló Harðardóttir



Skrifa athugasemd