Pistlar og pólitík
Ragnar Óskarsson
Ragnar Óskarsson (litil mynd)

23.04.2009 Pistlar og pólitík

Hvers vegna Vinstri græn ?


Í Alþingiskosningunum á laugardaginn verður tekist á um mörg grunvallaratriði um  framtíð íslensku þjóðarinnar.  Vinstri hreyfingin – grænt framboð leggur áherslu að sú framtíð verði að m.a. að byggjast á réttlátu samfélagi, kröftugri byggð, tryggri atvinnu, velferð fyrir alla og ábyrgri efnahagsstefnu.  Hafna þarf með öllu stjórnarháttum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem leitt hafa ómældar hörmungar yfir þjóðina eftir langa stjórnarsetu þessara flokka.
Vinstrihreyfingin- grænt framboð hefur þegar með aðild að ríkisstjórn síðustu mánuði sýnt að hreyfingin bæði vill þorir og getur stuðlað að nýju og réttlátu samfélagi þar sem sameiginlegir hagsmunir þjóðarinnar allrar eru í fyrirrúmi. Þess vegna er rökrétt að veita Vinstrihreyfingunni- grænu framboði brautargengi í kosningunum. Með því glæðist von um réttlátara samfélag.
Nokkur baráttumál Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs:

-Tryggjum íbúum landsins jafnræði óháð búsetu. Bætum samgöngur, jöfnum flutningskostnað og orkuverð. Gerum sveitarfélögum landsins kleift að sinna sínu lögbundna hlutverki og að þau fái sanngjarnari skerf af tekjustofnum ríkisins
-Sköpum réttlátt fiskveiðistjórnunarkerfi þar sem hagsmunir sjávarbyggða landsins eru tryggðir. Sköpum þar fleiri tækifæri með vistvænum og sjálfbærum veiðum.
-Tryggjum öllum landsmönnum aðgengi að fjölbreyttri menntun. Tökum upp gjaldfrjálsar og hollar skólamáltíðir í grunnskólum landsins. Eflum rannsóknir og nýsköpun í tengslum við sjávarútveg, ferðaþjónustu og landbúnað.
-Stöndum vörð um velferð fyrir alla. Styrkjum mennta- og heilbrigðiskerfið og tryggjum  að allir eigi þar jafnan rétt óháð búsetu og tekjum. Höfnum einkavæðingu í velferðarkerfinu öllu.
-Nýtum þau tækifæri sem Ísland hefur í stóraukinni atvinnuuppbyggingu í ferðaþjónustu.
-Styðjum nýsköpun í umhverfisvænni atvinnuuppbyggingu og bætum starfsemi sprotafyrirtækja.  Nýtum sérstaklega tækifæri til uppbyggingar og endurreisnar atvinnutækifæra á landsbyggðinni.
-Lækkum vexti umtalsvert og hratt á næstu mánuðum og afnemum verðtryggingu í áföngum. Grípum til ráðstafanna til þess að skuldsett heimili komist úr þeim vanda sem þau nú eiga í vegna óstjórnar undanfarinna ára.
-Tökum upp sanngjarnt skattakerfi sem miðar að tekjujöfnun. Herðum á aðgerðum til að sporna gegn stórfelldum skattsvikum sem þrifist hafa vegna óstjórnar síðustu ára. Upprætum undanskot fjármuna í skattaskjól og treystum aðgang yfirvalda að upplýsingum til að endur heimta til þjóðarinnar það fjármagn sem skotið hefur verið undan.
-Sýnum aðhald í ríkisfjármálum.  Skerum niður alla hernaðartengda starfsemi og spörum í utanríkisþjónustunni og opinberri stjórnsýslu. Afnemum sérkjör og ofurlaun og útrýmum kynbundnum launamun.

Höfnum skipbrotsstefnu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Lærum af reynslunni.   Kjósum um nýtt, réttlátt og sanngjarnt samfélag. Kjósum því X V.
Ragnar Óskarsson VG hreyfingin

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica