Framsókn er fyrir okkur öll.
Nú styttist óðum í einar mikilvægustu kosningar sem haldnar hafa verið á lýðveldistímanum og mestu skiptir að hver og einn nýti atkvæðisrétt sinn og kjósi. Það eru í raun aðeins fjórir kostir í boði, en það er: að kjósa sjálfstæðismenn sem halda í hugmyndafræði sem er fallinn. Svo er hægt að kjósa samfylkinguna og þeir sem kjósa vinstri græna eru í raun aðeins að styrka samfylkinguna, því þeir eru búnir að binda sig á landsfundi að fara einungis í stjórn með þeim. Og getur því samfylkingin komið öllum sínum stefnumálum í gegn, því vinstri grænir eru nauðbeygðir til að samþykkja allt, þar sem þeir hafa ekki heimild til að vinna með öðrum. Sér maður þetta núna strax í Evrópuumræðunni en vinstri grænir útiloka ekki lengur ESB aðild. Í þriðja lagi er svo er hægt að kjósa annað hvort af hinum nýju framboðum.
Fjórði möguleikinn og jafnframt sá skynsamasti er að kjósa Framsóknarflokkinn en Framsóknarflokkurinn er eini flokkurinn sem komið hefur með heilstæðar efnahagstillögur um hvernig eigi að koma okkur upp út úr kreppunni. Það er meðal annars með:
- Leiðréttingu á lánum um 20%
- Lækka vexti sem allra fyrst
- Koma gjaldmiðilsmálum þjóðarinnar í varanlega höfn og afnema gjaldeyrishöft sem fyrst með samningum við erlenda krónueigendur og íslenska lífeyrissjóði.
Nýr samnigur við sauðfjár- og kúabændur er gagnslaus ef ekki verður gripið til viðameiri aðgerða af hálfu stjórnvalda til að koma efnahagskerfinu í lag. Við bændur tökum á okkur skerðingar en ætlumst til þess í staðinn að fjármálaumhverfi okkar komist aftur í lag og um það snúast tillögur Framsóknarflokksins.
Garðyrkjubændur horfa ekki upp á bjarta tíma ef raforkuverð verður ekki leiðrétt strax en það munum við framsóknarmenn gera ef við komumst til valda.
Kjósum rétt – kjósum XB.
Framsókn er fyrir okkur öll.
Guðni Ragnarsson, bóndi,
Guðnastöðum.
Skipar 5. sæti lista Framsóknar í Suðurkjördæmi



Skrifa athugasemd