Pistlar og pólitík
Arndís Soffía Sigurðardóttir
Arndís Soffía Sigurðardóttir

23.04.2009 Pistlar og pólitík

Hrun heillar hugmyndafræði

 

Fátækleg hugmyndafræði þeirra stjórnmálaafla sem hafa ríkt í tæpa tvo áratugi hefur nú afhúpast. Þjóðin kallar á nýja hugsun í stjórnarráðið, hugsun sem byggir á félagshyggju, réttlæti, jöfnuði, heiðarleika og sanngirni.

Enn halda Sjálfstæðismenn áfram að afhjúpa sig á þingi, og nú síðast í hinu svokallaða stjórnarskrármáli. Þeir eru á móti því að auðlindirnar yrðu sameign þjóðarinnar, þeir eru á móti því að auðvelda þjóðinni að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslu. Hvernig er hægt að verja þessa afstöðu? Ef þjóðin á ekki að eiga auðlindirnar, hver þá? Er það virkilega svo, eftir allt sem á hefur dunið, að Sjálfstæðismenn hafi enn orðið uppvísir að því að vera varðsveit sérhagsmunahópa?

Nú er brýnna en nokkru sinni fyrr að stjórnmálaöfl með háleitari hugsjónir en að framan er rakið fái umboð til að stjórna, landi og þjóð til heilla.

 

Kosningaloforðin

Nú kepptast fulltrúar stjórnmálaflokkanna við að lofa öllu fögru og jafnvel uppí ermina á sér en það er alveg ljóst að Vinstri græn hafa ekki tekið þátt í þeim ljóta leik. Við tökum ekki þátt í því að blekkja þjóðina, þjóðin á betra skilið. Vinstri græn hafa rekið heiðarlega kosningabaráttu þar sem horfst er í augu við staðreyndir. Við munum höfða til skynsemi kjósenda og láta svo verkin tala. Við getum þó lofað kjósendum einu og svo sannarlega staðið við það.

Við getum lofað kjósendum því að stunda heiðarleg vinnubrögð, við getum lofað kjósendum að hafa réttlætið ætíð að leiðarljósi, við getum lofað kjósendum að segja þeim sannleikann. Þessu öllu getum við lofað og það kostar ekki eina krónu. Samt sem áður eru þessi loforð án nokkurs vafa þau dýrmætustu sem nokkur stjórnmálaflokkur getur lofað kjósendum.

 

Heitt vor

Nú fer að vora og grösin grænka. Veturinn hefur verið erfiður og nú í aðdraganda kosninga er áreitið mikið. Allir keppast við að útskýra tæknilegar útfærslur á því hvernig framkvæma eigi hlutina, hvernig stýrivöxtum verði náð niður, hvernig skattar verði útfærðir, hvernig við stoppum í fjárlagagatið og allir eru með það á hreinu að þeirra aðferð sé best.

Við verðum að stíga tvö skref afturábak, líta yfir sviðið og spyrja stóru spurninganna. Hvað er það sem skiptir í raun og veru máli? Er það ekki það sem stendur manni næst, fjölskyldan, heilsan, æran og góð gildi? Er það ekki að hér sé réttlátt samfélag? Við megum ekki missa móðinn í þessu stormviðri. Verum bjartsýn og jákvæð og stöndum saman.

 

Kjördagur, 25. apríl 2009

Í ljósi undangenginna atburða í íslensku samfélagi verður þessi dagur sögulegur hver sem úrslit kosninganna verða. Munum, þegar við göngum til kjörfundar, að líta til baka og láta reynsluna segja okkur hvern við viljum kjósa til að stjórna framtíð okkar. Hverjum er treystandi til að standa vörð velferðarkerfið? Hverjir eiga eftir að standa vörð um málefni landsbyggðarinnar? Hverjum er treystandi til að hafa réttlæti ætíð að leiðarljósi? Svarið er skýrt í mínum huga. Við eigum að treysta Vinstri grænum.

 

Arndís Soffía Sigurðardóttir skipar 2. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs í Suðurkjördæmi

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica