Tökum skýra afstöðu og segjum satt
Þegar ég ákvað að gefa kost á mér í eitt af efstu sætunum á lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs við Alþingiskosningarnar nú, var það fyrst og fremst vegna þess að ég var búin að fá mig fullsadda á stjórnarháttum undanfarinna ára og ég vildi taka virkan þátt í að byggja upp að nýju íslenskt samfélag. Hremmingar þær sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa leitt yfir þjóðina eru svo miklar að nú þarf sannarlega nýja sýn og nýjar hugmyndir til að byggja á til framtíðar. Vinstri græn hafa sett fram stefnu sína sem byggist m.a. á því að skapa hér nýtt og sanngjarnt samfélag. Meginatriði stefnunnar byggist á jafrétti á öllum sviðum, jafnrétti með tilliti til menntunar, til búsetu, til efnahags, atvinnu, kynferðis o.fl. Ef Vinstri græn koma vel út úr Alþingiskosningunum á laugardaginn eru auknar líkur á að íslenskt samfélag nái að rétta við og þá með jöfnuð að leiðarljósi.
Þrátt fyrir að mörg verk og erfið séu framundan og mörgu þurfi að taka á eftir kosningar tel ég að uppbygging á sviði atvinnumála höfuðverkefni nýrrar ríkisstjórnar. Störf í byggðunum þarf að treysta, nýta þarf skynsamlega þær auðlindir sem vannýttar eru og stuðla þannig að fjölbreyttu atvinnulífi í stað þeirrar stöðnunar og einhæfni sem ríkt hefur undanfarin ár.
Ferðaþjónusta er t.d. afar mikilvæg atvinnugrein sem gefur ótal nýja möguleika. Enginn vafi er á því hún á eftir að hafa mikil áhrif til framtíðar. Nálægð okkar við hafið býður upp á marga nýja möguleika t.d. gætum við verið enn frekari frumkvöðlar í rannsóknum um skynsamlega nýtingu hafsins og þeirra auðlinda sem þar eru.
Hér er aðeins minnst á brot af þeim málum sem verða í brennidepli í kosningunum á laugardaginn. Þá verður sannarlega tekist á um þjóðarhagsmuni og sérhagsmuni. Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn hafa á undanförnum áratugum komið og sett sérhagsmunina í forsæti með þeim afleiðingum sem við öll þekkjum. Vinstri græn leggja hins vegar áherslu á þjóðarhagsmunina, byggða á sanngirni réttlæti og jöfnuði. Vinstri græn koma hreint fram, taka skýra afstöðu og það sem meira er, Vinstri græn segja satt og eru heiðarleg gagnvart kjósendum. Með það vegarnesti göngum við til kosninganna á laugardaginn.
Jórunn Einarsdóttir skipar 3. sæti á lista Vinstri Hreyfingarinnar Græns framboðs í Suðurkjördæmi




Skrifa athugasemd