Pökkum saman
Það hafa kannski einhverjir tekið eftir töskunum sem búið er að koma fyrir úti á gatnamótum Hafnarbrautar og Víkurbrautar en það er gjörningur sem Ungir Sjálfstæðismenn um allt Suðurkjördæmi standa fyrir og vilja vekja fólk til umhugsunar um þá vinstri stjórn sem gæti komist til valda í landinu eftir kosningarnar næsta laugardag.
Það yrði dapurleg staðreynd að Íslendingar kjósi yfir sig vinstri stjórn í blindri reiði vegna átaka í stjórnmálum síðustu vikur. Stefna Sjálfstæðisflokksins er að koma bönkunum úr ríkiseigu, auðvelda fyrirtækjum aðgang að lánsfé, nýta auðlindir og þar með skapa 20.000 störf. Vinstri flokkarnir vilja hækka skatta og lækka laun og draga atvinnulífið undir hið opinbera með óarðbærum störfum.
Við í Suðurkjördæmi eigum mikið undir í sjávarútvegi. Með aðild Íslands að ESB mun sjávarútvegur landsins heyra undir menn í Brussel og við munum ekki ráða yfir fiskimiðum okkar.
Íslendingar eiga að nota auðlindir landsins bæði til lands og sjávar til að efla atvinnulíf í landinu.
Stjórnmálaflokkarnir sem ganga bundnir til kosninga næstkomandi laugardag, Vinstri-grænir og Samfylkingin, hafa fátt sameiginlegt á stefnuskrá sinni. Þar ber hæst Evrópusambandsaðild, sem annar hvor flokkurinn verður að gefa eftir ef þeir ætla að halda áfram stjórnasamstarfi.
Ungir sjálfstæðismenn vilja á þessum síðustu metrum kosningabaráttunnar benda kjósendum á að ef að vinstri stjórn verður við völd eftir kosningar er bara best að PAKKA SAMAN og yfigefa landið.
Skaftfellingur, FUS á Höfn
f.h. stjórnar Bergþóra Ágústsdóttir




Skrifa athugasemd