Pistlar og pólitík
Margrét Tryggvadóttir
Margrét Tryggvadóttir

20.04.2009 Pistlar og pólitík

Glæpsamleg vanhæfni eða lygar?

Þann 5. ágúst 2008 skrifaði Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra grein á heimasíðu sinni sem hann nefndi “Útrás og árangur bankanna” en greinin er nú horfin af heimasíðu Björgvins. Þar reifar hann ævintýralega velgengni íslensku bankanna, kjark, þor og góða þekkingu útrásarvíkinganna sem skilaði skjótum arði. Björgvin fer mikinn í aðdáun sinni á bönkunum en víkur svo talinu að gagnrýni á bankana, sérstaklega fyrir að vera ekki nógu burðugir og um of háðir skammtímafjármögnun. Hann ræðir gagnrýni sem hann segir vera frá samkeppnisaðilum bankanna erlendis, þá sérstaklega frá Danske Bank og Nordea í Finnlandi. Orðrétt segir Björgvin:

“Aðstoðarmenn (svo) Nordea í Finnlandi, Markku Pohojla, gefur til dæmis opinberlega í skyn að íslensku bankarnir munu fljótlega lenda í miklum vandræðum. Hann gengur jafnvel svo langt að gera því skóna að íslensku bankarnir verði ekki til staðar eftir nokkra mánuði.”

Björgvin gerir lítið úr þessu mati og segir það ekki byggja á neinni greiningu á íslensku bönkunum og að um rógburð sé að ræða vegna þess að Glitnir og Kaupþing hafi hafið sókn inn á markað fyrir sparifé í Finnlandi með svipuðum hætti og Landsbankinn hafði gert í Bretlandi. Við getum ekki annað en þakkað fyrir að ekki varð mikið úr þeirri starfsemi. Og áfram heldur Björgvin:

Ásakanir þessar eru alvarlegar þar sem þær beinast einnig að íslenskum eftirlitsaðilum, sérstaklega Fjármálaeftirlitinu en einnig að hluta Seðlabankanum. Ítarleg greining þessara tveggja lykilstofnanna gefa ekkert annað til kynna en að íslenska bankakerfið sé mjög stöndugt. Í ofanálag eru innlán Finna í íslenskum bönkum tryggð með innistæðutryggingum. Að því leiti til sem finnskar reglur þar að lútandi veita betri réttindi en íslenkar myndu bankar bæta tjón sparifjáreigenda ef svo ólíklega vildi til að einhverjir bankar kæmust í lausafjárskort.”

Nú langar mig mikið að vita hvort Björgvin hafi verið að ljúga að okkur til að auka tiltrú á bönkunum eða hvort hann hafi hreinlega verið glæpsamlega vanhæfur í starfi? Aðra möguleika sé ég ekki í stöðunni og hvort heldur sem er nægir ekki að segja af sér í eina viku.

Margrét Tryggvadóttir

skipar fyrsta sæti á lista Borgarahreyfingarinnar í Suðurkjördæmi

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica