Hvað gera hagsýnar húsmæður og -feður í dag
Mánaðarleg föst útgjöld hafa hækkað um tugi þúsunda. Fyrir utan allt sem flokkast undir óregluleg útgjöld, viðhald á húsnæði, fatnaður, læknisþjónusta, viðhald á bílum og fleira, þetta allt hefur hækkað um 20-50%. Á móti hafa tekjur lækkað. Hvað er hægt að gera þegar tekjur lækka og gjöld hækka um tugi og hundruði þúsunda?
Ég ákvað að leita ráða á heimasíðu ríkisstjórnarinnar www.island.is
Þar stendur: “Heimilin í landinu hafa ekki farið varhluta af áhrifum efnahagsþrenginga síðustu mánaða - og víða kreppir að. Allt kapp er lagt á að standa vörð um hag heimilanna.” Þetta hljómar vel. Svo segir lika að mikilvægt sé að leita strax aðstoðar áður en vanskil verða veruleg.
Hvað geta heimilin gert til að stoppa í tugþúsunda fjárlagagat, sem kemur í ljós um hver mánaðarmót?
- Lög um greiðsluaðlögun er fyrir þá sem eru komnir í þrot og þurfa að leita nauðarsamninga. Það á ekki við hjá mér, sem betur fer er staðan ekki svo slæm.
- Þá er á vefnum grein um Greiðsluerfiðleika, Það er hægt að sækja um greiðslujöfnun á fasteignaláni, gallinn er að heildarkostnaður við lánið hækkar verulega sé þessi leið farin. Það bara tel ég ekki skynsama leið.
- Það er hægt að sækja um frystingu á bílaláni í einhverja mánuði, hvað svo?
- Það er mælt með því að maður fái fjármálaráðgjöf í viðskiptabankanum sínum. Ég bara treysti bankanum alls ekki til að ráðleggja mér eitt né neitt.
- Svo er það grein um “Fjárhagslega ábyrgð”: Ráðin sem að mælt er með er að gera er að halda heimilisbókhald og að “taka stöðuna á fjármálunum”. Ég hef haldið heimilisbókhald í mörg ár, þannig að ég get ekki byrjað á því núna.
- Ég get keyrt minna, en ég bý úti á landi og þar eru engar almenningssamgöngur svo ég get ekki lagt bílnum.
- Svo er hægt að taka út lífeyrissparnaðinn sinn. Þ.e. ef bankinn er ekki búinn að eyða honum. Hvað gerir maður þá þegar maður eldist?
Ég get ekki betur séð en að það eina sem hægt er að gera er að bíða þar til að staðan verður orðin svo slæm að fólk verði að lýsa sig gjaldþrota, þá tekur “skjaldborg heimilanna” við og bjargar öllu.
Það verður að grípa til neyðarráðstafana í þágu heimila og fyrirtækja strax.
Það eru 6 mánuðir liðnir frá hruninu, hinir flokkarnir hafa fengið tækifæri til að rétta af stöðuna en það hefur ekkert gerst. Heimilin geta ekki beðið 6 mánuði í viðbót. Það þarf aðgerðir strax.
Ég hvet ykkur til að skoða stefnu Borgarahreyfingarinnar í þágu heimilanna á XO.IS
Þórhildur Rúnarsdóttir. 5.Sæti Borgarahreyfingarinnar á Suðurlandi




Skrifa athugasemd