Pistlar og pólitík
Frambjóðendur Samfylkingar í Suðurkjördæmi
Frambjóðendur Samfylkingar í Suðurkjördæmi
Mynd 1 af 2
1 2

20.04.2009 Pistlar og pólitík

Fjölmennur fundur Jóhönnu með eldri borgurum á Selfossi

 

Jóhanna Sigurðardóttur var gestur á fjölmennum fundi Samfylkingarinnar með eldri borgurum, sem haldinn var á Hótel Selfossi í morgun. Jóhanna kynnti stefnu Samfylkingarinnar í velferðarmálum, hverju hefði veri áorkað til þessa. Hún lagði áherslu á að máli skipti hvaða sjónarmið væru höfð að leiðarljósi þegar herða þyrfti að í ríkisfjármálum og verja velferðina. Líflegar fyrisspurnir koma fram. Björgvin G. Sigurðsson ræddi um samgöngumál og efnahagsmál. Bæði Jóhanna og Anna Margrét Guðjónsdóttir, frambjóðandi í 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, röktu ítarlega afstöðu Samfylkingarinnar í Evrópumálum, hvað hún þýddi fyrir efnahag landsins og alls almennings, m.a. vegna vaxta og verðlags, þjóðareign á auðlindum, landbúnað og fleira.

Jóhanna lagði áhreslu á að hún væri reiðubúin að leiða næstu ríkisstjórn, væntanlega í samstarfi sömu flokka og nú, en minnti fundarmenn á að það gerði hún aðeins ef Samfylkingin næði til þess fylgi.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica