Grein um atvinnumál
Þorsteinn Valur Baldvinsson 1. á lista Lýðræðishreyfingarinnar
Sem frambjóðandi til Alþingis vill ég gera ýmislegt til að efla atvinnu og meðal annars gera þetta í atvinnuuppbyggingu
Iðnaður og nýsköpun
Að skapa atvinnu og byggja upp nýjar tekjulindir til framfærslu þjóðarinnar verður aldrei gert án þátttöku þeirra sem eru framtíð þjóðfélagsins, maðurinn og konan sem hafa hugmyndirnar og áræðnina til að hefja nýja framleiðslu á vörum og hugverkum.
Við erum kominn í virkilega erfiðleika vegna offramboðs á yfirveðsettu iðnaðarhúsnæði og nánast engrar fyrirgreiðslu til fyrirtækja sem eru mörg í rekstri sem reiðir sig á lánsfé.
Ég vil fara svipaða leið og er kynnt í svari 7.4.2009 til Hagsmunasamtök heimilanna um viðbrögð við vanda heimilanna.
Stofna iðnaðarhúsasjóð sem hefur það hlutverk að yfirtaka allt það iðnaðarhúsnæði sem eigendur vilja losna undan að halda í rekstri og eða eru komnir í þrot með, sjóðurinn hafi lagalegt vald sem skiptastjóri og geti eftir yfirtöku iðnaðarhúsnæðis á metnu markaðsvirði óháðs matsaðila, innkalla allar kröfur í yfirveðsetta fasteign sem skiptastjóri sé og láti fara fram opinbert uppboð, þannig að í raun verði afskrifaður sá hluti áhvílandi lána sem er yfir markaðsverði og kemur til með að tapast hvort sem er þó síðar verði.
Ef eignin lendir í eigu fyrirhugaðs iðnaðarhúsasjóðs verði eigninni komið í rekstur með því að bjóða tímabil leigulausra afnota af slíku húsnæði til þeirra sem vilja hefja nýja framleiðslu, eða sköpun með stuðningi frá starfsmönnum sem ráðnir verða til að annast ráðgjöf og stuðning við nýjan rekstur.
Samskonar fyrirgreiðslu ætti að bjóða til þeirra erlendu fyrirtækja sem hingað vildu koma gegn slíkum kjörum og jafnvel annarra ívilnana á svið skatta, ýmissa gjalda og eða kostnaðar sem hægt væri að draga úr tímabundið á meðann við værum að koma hjólum atvinnulífsins af stað og efla atvinnu.
Það er fólk um allt land sem hefur margt fram að færa og með því að hjálpa því af stað og styðja fyrstu skrefin er hægt að byggja upp fjölbreitt og skapandi atvinnulíf til framtíðar, auk þess sem mikið af hæfileikafólki á atvinnuleysisskrá sem getur tekið þátt í svona verkefni og með tengingu við skólakerfið á að vera hægt að nota svona verkefni, sem námskeið í hinum ýmsu greinum og efla bók sem verkþekkingu, ásamt því að efla atvinnulausa fyrir framtíðina.
Landbúnaður
Í landbúnaði á að gefa frelsi til athafna og setja ekki aðrar skorður við aukningu á framleiðslu en að staðfesting á að fóðuröflun sé trygg og að landið þoli fyrirhugað álag, einnig þurfa bændur að fá 15 ár til að afskrifa kvótakaup á móti rekstrarhagnaði.
Styrki til bænda á að greiða þeim beint og það á að vera þeirra val hvort þeir kaupa ráðgjöf frá þjónustuaðilum eins og bændasamtökunum til dæmis, garðyrkjubændur eiga að njóta sömu kjara á raforku og önnur stóriðja en jafnframt á að fella niður aðrar niðurgreiðslur og greiðslur til samtaka bænda úr ríkissjóð
Bændur eiga að fá fullar heimildir til að selja framleiðsluna beint frá búi og skera verður niður álögur og ýmiss íþingandi gjöld og kvaðir á bændum, en styðja við opnun framleiðslumarkaða sem eins og fiskmarkaðir selji vörur bænda til bæði innlendra og erlendra kaupanda.
Samkeppnisstofnun hafi eftirlit með frjálsri framleiðslu og verslun með landbúnaðarvörur.
Frelsi til athafna mun leysa úr læðingi það hugvit og athafnarkraftinn sem býr í góðum bónda.
Sjávarútvegur
Kvótaeigendur fái að afskrifa kvótakaup á 15 árum en ríkið taki jafnóðum til þjóðar eignar afskrifaðan kvótann og bjóði út árlega veiðiréttindin með landshluta bundinni vinnsluskildu á hluta aflans en gefið sé frelsi til strandveiða í gildrur og á handfæri.
Rannsóknir Hafrannsóknastofnunar verði stórefldar á öllum nýtingarmöguleikum hafs og botns til að geta nýtt allt sem getur gefið þjóðinni tekjur og til að hindra óbætanlegar skemmdir á lífríki hafsins með stjórnlausri veiði og skilningslausri umgengni um hafsvæðið.
Ferðaþjónusta
Móttaka ferðamanna verði stórbætt og úr öllum aðbúnaðar og aðgengismálum bætt til að tryggja varðveislu lands og umhverfis, með afmörkun og gerð göngustíga, fjölgun salerna og áningarstaða með viðeigandi aðstöðu og stórbættum merkingum.
Verulegt átak verði gert í að endurbyggja og lagfæra gamlar byggingar, mannvirki og söguleg verðmæti um allt land til að styrkja við ferðaþjónustuna og arfleifðina.
Ofangreind uppbygging og stuðningur við ferðaiðnaðinn verði atvinnuátaksverkefni sem miðist við að viðhalda gamalli verkþekkingu í bland við fræðslu og kennslu þátttakanda.
Þetta eru svona nokkrir punktar til að kynna mína sýn á hvað þurfi að framkvæma, til að við getum byggt upp sterkara samfélag um allt land, í stað þess að halda áfram stríðinu sem fyrri ríkisstjórnir hafa háð gegn landsbyggðinni á undanförnum árum.
Svar til Hagsmunasamtaka heimilanna
Hagsmunasamtök heimilanna settu hálfsíðu auglýsingu á blaðsíðu 24 í Fréttablaðinu þann 6. Apríl og spurðu hvaða aðgerðir flokkarnir hefðu hugsað sér að grípa til vegna vanda heimilanna.
Í lýðræðishreyfingunni eru skoðanir jafn margar frambjóðendum því ekki er um miðstýrðan flokk að ræða, kjósendur verða að velja sér þann frambjóðenda sem þeim líst best á með því að raða þeim með númerum í kjörklefanum eða stroka yfir.
Hér er það svar sem ég sendi samtökunum 7 Apríl 2009
Þakka fyrir þetta tækifæri til að fá að svara spurningum ykkar um aðstoð vegna vanda heimilanna í landinu, sökum þess hvernig spurningarnar eru orðaðar fannst mér best að senda ykkur svarið með þessum hætti:
Mun leggja til að umsækjendur um það fyrirkomulag sem hér er verið að kynna fái með setningu bráðabyrðalaga greiðslustöðvun fram að gildistöku fyrirhugaðra laga og að lögin verði um stofnun B sjóðs íbúðalána, sem hafi það hlutverk að taka við þeim íbúðum sem eigendur sjá fram á að þeir komist brátt í greiðsluþrot með eða eru komnir í þrot með
Sjóðurinn geri samning við eigendur um yfirtöku eigna á metnu markaðsvirði óháðs matsaðila, geri kaupleigusamning við íbúðareigendur um fasteign þannig að fólk geti áfram búið í íbúðum sýnum og fjölskyldur flosni ekki upp .
Kaupleigusamningar og mat á greiðsluþoli sé gert í samvinnu við ráðgjafamiðstöð heimilanna til að tryggja að ekki sé gengið of nærri raunverulegri greiðslugetu fólks.
B sjóður íbúðalána verði skráður eigandi fasteignar og hafi rétt til að innkalla allar kröfur í fasteign sem er yfirveðsett sem skiptastjóri og láti fara fram lokað uppboð á meðal kröfuhafa, þannig verði í raun afskrifaður hluti áhvílandi lána.
Hæðst bjóðandi í eignina verði að taka við eign með áhvílandi kvöð um forkaupsrétt og kaupleigusamning við upprunalega íbúðareigandann í lok þessa ferils.
Ég er í raun að tala um endurfjármögnun á forsendum veruleikans í dag og afskriftir á fyrirsjáanlegu tapi lánveitandans.
Samhliða þessum aðgerðu mun ég leggja til að fyrir fyrsta lokaða uppboð hjá B sjóð íbúðalána sé verðtrygging lána til íbúðarkaupa einstaklinga bönnuð, þannig að engar verðtryggðar skuldir hvíli á þeim fasteignum sem í gegnum kerfi B sjóð hafa farið.
Með kveðju
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm
Suðurkjördæmi
XP




Skrifa athugasemd