Rútuferðin
Á forsíðu vefsins rikivatnajokuls.is er pistill ásamt myndum.
Ég veit ekki alveg hvort venjan sé að senda myndir úr jarðaförum á vefmiðla. Kannske er þetta nýjasta fjáröflunarleið íhaldsins eftir að stoðirnar hrundu.
Í seinni tíð hafa þeir sem lesa yfir þeim látnu, látið sér gamanmál um munn fara til að létta andrúmsloftið í athöfninni en ekki verður séð á þeim myndum sem fylgja pistli þessum að það hafi verið viðhaft í þetta sinn enda fjarri því að grunnt sé á gamninu þar sem þessi fjárhópur kemur saman.
Hvað um það. Við í Vinstri hreyfingunni Grænu framboði göngum hnarreist út í vorið enda þurfum við engan kinnroða að bera vegna afglapa fyrri tíðar.
Okkar bíður það verkefni að reisa efnahag þjóðarinnar úr rústum nýfrjálshyggjunnar sem og virðingu stjórnmála og stjórnmálamanna. Það verður ekki vandalaust en við treystum því kjósandi góður að þú veitir okkur stuðning til þess með atkvæði þínu í komandi kosningum.
Þórbergur Torfason
Skipar 6. sæti á lista VG. í Suðurkjördæmi




Skrifa athugasemd