Pistlar og pólitík
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í heimsókn
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi verða á ferðinni á Hornafirði þriðjudaginn 14.apríl. Þeir munu heimsækja fyrirtæki á staðnum og kynna sér starfsemi þeirra. Í hádeginu verður kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins opnuð formlega á fundi á Kaffihorninu og boðið upp á súpu og brauð. Allir velkomnir. Kosningaskrifstofan verður til húsa að Kirkjubraut 3 (Sjallinn) og opin alla daga frá klukkan 17 – 19.
Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurkjördæmi.



Skrifa athugasemd