Um hvað verður kosið í vor?
Kosningar nálgast nú óðfluga og átakalínur flokkanna skýrast með degi hverjum í kjölfar stefnumótunar flokkanna á landsfundum sínum. Ljóst er að VG og Samfylking ætla sér að ganga bundin til kosninga. Frjálslyndir mælast vart í skoðanakönnunum og Framsóknarflokkurinn styður vinstristjórn, atkvæði greitt Framsóknarflokknum í kosningum í vor er því atkvæði greitt vinstri stjórn.
Valkostir kjósenda eru því skýrir og í raun aðeins tveir, hægri eða vinstri. Kjósandinn þarf að spyrja sig hvort hann vilji treysta á framtak einstaklingsins eða ríkisrekstur? Hvort hann vilji sjálfstæði eða Evrópusambandsaðild? Hvort hann vilji sterkan og kröftugan sjávarútveg og landbúnað eða ekki? Hvort hann vilji niðurskurð opinberra útgjalda eða skattahækkanir og skuldasöfnun til handa komandi kynslóðum?
Sjálfstæðisstefnan hefur sjaldan eða aldrei átt meira erindi við íslenska þjóð en einmitt nú. Við uppbyggingu landsins okkar til framtíðar er nauðsynlegt að virðing verði borin fyrir einstaklingnum og réttindum hans. Ég vil búa í samfélagi sem hvetur einstaklingana til að leggja sitt af mörkum, á þann hátt að þeir fái notið afraksturs eigin verka. Það er lykillinn að bjartri framtíð. Samfélag þar sem ríkir trú á frelsi einstaklingsins samfara ábyrgð á eigin gerðum og þar sem umburðarlyndi ríkir gagnvart mismunandi lífsháttum. Samfélag þar sem ríkja efasemdir um það að ríkisvaldið leysi öll vandamál og þar sem stétt vinnur með stétt að því marki að efla heildina vegna þess að í landinu er ein þjóð sem hefur sameiginlegra hagsmuna að gæta. Samfélag þar sem lögð er áhersla á að auka það sem til skiptanna er og tryggir með því hagsmuni allra íbúa landsins. Þetta eru þau leiðarljós sem koma þjóðinni best þegar til lengri tíma er litið, þetta eru grunngildi Sjálfstæðisstefnunar.
Ég trúi á fólkið í landinu. Ég trúi því að ef við byggjum á framtaki og hugmyndaauðgi einstaklingsins þá sé framtíðin björt. Með bjartsýni, dugnað og framtak að vopni munu einstaklingarnir endurreisa Ísland.
Í mínum huga er valið skýrt, við kjósum til hægri, við kjósum Sjálfstæðisflokkinn.
Unnur Brá Konráðsdóttir skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi




Skrifa athugasemd