Pistlar og pólitík
Sigurður Ingi á ferð um kjördæmið
Sigurður Ingi á ferð um kjördæmið
Mynd 2 af 2
1 2

10.04.2009 Pistlar og pólitík

Sigurður Ingi á ferð um kjördæmið

 

Sigurður Ingi Jóhannsson efsti maður á lista Framsóknarflokks var á ferð um austur hluta kjördæmisins dagana 6. og 7. apríl. Í ferð með honum var Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri Hrunamannahrepps og fyrrum alþingismaður Framsóknar.

Þeir félagar heimsóttu fyrirtæki, áttu fundi með stjórn Framsóknarfélags Austur Skaftafellssýslu.

M.a. skoðuðu þeir Norðurbragð, Skinney-Þinganes, Nýheima og litu inn á bæjarskrifstofurnar.

Þá voru þeir viðstaddir þegar Skinney SF-20, nýtt togveiðiskip Skinneyjar-Þinganess kom í heimahöfn í fyrsta sinn.

Sigurður Ingi verður aftur á ferð á Höfn á föstudaginn 10 apríl. En þá er fyrirhugaður stofnfundur félags ungra Framsóknarmanna í A-Skaftafellssýslu.

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica