Pistlar og pólitík
Kosningamiðstöð opnuð
Kosningamiðstöð opnuð
Margt var um manninn við opnun kosningamiðstöðvarinnar.

09.04.2009 Pistlar og pólitík

Samfylkingin opnar kosningamiðstöð

Margt var um manninn við opnun kosningamiðstöðvar Samfylkingarinnar á Höfn í gær. Gestir opnunarinnar voru þau Björgvin G. Sigurðsson, Oddný G. Harðardóttir og Róbert Marshall en þau skipa þrjú efstu sætin á lista flokksins í Suðurkjördæmi. Árni Rúnar Þorvaldsson, sem skipar 7. sætið á listanum bauð gesti velkomna og opnaði skrifstofuna formlega en því næst héldu þau Björgvin, Oddný og Róbert stuttar ræður þar sem þau fóru nokkrum orðum yfir stjórnmálaástandið almennt í landinu, þá endurreisn, sem bíður stjórnvalda í kjölfar efnahagshrunsins og þá kosningabaráttu, sem nú er hafin.
Að ræðuhöldum loknum gafst gestum og gangandi tækifæri til þess að ræða við frambjóðendurna og verðandi þingmenn Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Óhætt er að segja að gestir opnunarinnar hafi nýtt þetta tækifæri mjög vel og um margt var spjallað.
Kosningamiðstöðin er í Miðbæ á Höfn og verður opin fram yfir kosningar. Nánari opnunartími verður auglýstur síðar. Allar upplýsingar er hægt að nálgast í síma kosningamiðstöðvarinnar 618-8396. Við hvetjum alla til að koma og kynna sér stefnumálin og ræða við frambjóðendur. Allir velkomnir og alltaf heitt á könnunni.

- Samfylkingin í Suðurkjördæmi  

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica