Pistlar og pólitík
Samfylkingin á Hornafirði
Samfylkingin á Hornafirði

25.03.2009 Pistlar og pólitík

Aðalfundur Samfylkingarinnar á Hornafirði

 

Samfylkingin á Hornafirði hélt sinn aðalfund þriðjudaginn 24. mars síðastliðinn í húsi Afls við Víkurbraut. Félagið var stofnað 27. október árið 2002 í aðdraganda alþingiskosninga. Óhætt er að segja að félagið hafi eflst og dafnað á starfstímanum og það er núna búið að ganga í gegnum tvö prófkjör, tvennar alþingiskosningar og einar sveitarstjórnarkosningar. Nú bíður félagsins kosningabarátta vegna alþingiskosninganna 25. apríl nk. og óhætt er að segja að mikill hugur sé jafnaðarmönnum á Hornfirði – sem og á landinu öllu – fyrir þær kosningar.

Hlutur Hornfirðinga góður

Á fundinum var farið starf félagsins á síðasta ári sem og reikninga þess sem voru samþykktir. Einnig var rætt um nýafstaðið prófkjör Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, niðurstöður þess og þá kosningabaráttu sem framundan er. Fram kom ánægja með góðan hlut Hornfirðinga á framboðslista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi en Hornfirðingar skipa 7. og 16. sæti listans í komandi kosningum. Líkur verða teljast nokkuð góðar – ef miðað er við skoðanakannanir þessa dagana – að 7. sætið sé ávísun á varaþingsæti.

            Árni Rúnar Þorvaldsson var endurkjörinn formaður og stjórn félagsins var einnig endurkjörin en í henni eiga sæti; Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Magnús J. Magnússon, Ingvar Þórðarson og Guðrún Ingimundardóttir. Varamenn í stjórn voru kjörin Anna María Ríkharðsdóttir, Nökkvi Jóhannesson og Stephen Róbert Johnson. Að lokum kaus fundurinn fulltrúa félagsins á landsfundi flokksins um næstu helgi í Kópavogi.

Ferðasjóður ÍSÍ mikilvægur

Á fundinum sköpuðust umræður um stjórnmálaástandið í landinu almennt og töluverður umræður sköpuðust um stöðu ferðasjóðs ÍSÍ og samþykkt var ályktun um uppbyggingu sjóðsins. Sá sjóður hefur nú þegar sannað gildi sitt fyrir allt íþróttastarf á landsbyggðinni og auðveldar ungmennum um allt land að stunda sína íþrótt. En eftirfarandi ályktun var samþykkt á aðalfundinum:

 

Aðalfundur Samfylkingarinnar Hornafirði harmar þá ákvörðun stjórnvalda að fresta uppbyggingu ferðasjóðs ÍSÍ og hvetur stjórnvöld til þess að standa við fyrri áform um uppbyggingu sjóðsins. Hér er um gríðarlegt hagsmunamál að ræða fyrir íþróttalíf á landsbyggiðinni sem jafnar aðstöðu ungmenna til íþróttaiðkunar á landsvísu. Aðalfundur Samfylkingarinnar á Hornafirði hvetur einnig  bæjarstjórn sveitarfélagsins til þess að beita sér í málinu.

 

Samfylkingin á Hornafirði

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica