Pistlar og pólitík
Grímur Gíslason
Grímur Gíslason

11.03.2009 Pistlar og pólitík

Það mun reyna á nýja þingmenn í varnarbaráttunni framundan

Reynsla, seigla, ákveðni, þor og vinnusemi mun nýtast vel í þeim slag

 

Staðfesta og ákveðni í ákvarðanatöku er alltaf mikilvæg en þó aldrei mikilvægari en þegar óvissuástand ríkir. Það ríður á að hafa staðfestu og þor til að standa í lappirnar. Standa af sér mótbyr og hafa þor til að taka ákvarðanir og standa við þær þó ekki séu ef til vill allir ánægðir með þær.

Til setu á alþingi er mikilvægt að velja fólk með víðtæka reynslu. Reynslu af því að komast af í lífinu og þurfa að sjá sér og sínum farborða. Reynslu úr atvinnulífinu. Reynslu af  samningaferli, ákvarðanatöku, almenna pólitíska reynslu og innsæi til að takast á við verkefni á sviði stjórnmála þegar á móti blæs og óvissa er ríkjandi.

Þannig er ástand á Íslandi í dag. Það er óvissa. Það eru pólitískar sviftingar. Það er harður slagur um sérhvert mál sem upp kemur. Það reynir á og mun reyna á næstu misserin í þessum efnum. Það mun reyna á að þingmenn hafi þor og dug til að standa á sínu.

Framundan eru alþingiskosningar og um næstu helgi heldur Sjálfstæðisflokkurinn prófkjör til að stilla fólki upp á lista sinn fyrir þingkosningarnar. Í þessu prófkjöri verða valdir þeir frambjóðendur sem kjósendur í Suðurkjördæmi treysta best til að takast á við þau mörgu og erfiðu verkefni sem bíða á næstu árum.

Prófkjör eiga hvorki að vera fegurðarsamkeppni né vinsældarkosning. Þau eru hugsuð sem tæki til að stilla upp á framboðslista fólki sem á að duga til vinnu á alþingi. Fólki sem er tilbúið að taka þann slag sem þarf. Fólki sem hefur reynslu til að vinna sem best að hagsmunum kjördæmisins sem og þjóðarinnar allrar.

 

Aldrei vænlegt til árangurs að stinga höfðinu í sandinn

Það er gott að horfa björtum augum fram á veginn og einnig nauðsynlegt að stjórnmálamenn tali kjark í fólk en það verður samt að horfast í augu við staðreyndir og vinna út frá þeim. Það hefur aldrei verið vænlegt til árangurs að stinga höfðinu í sandinn og neita að sjá hlutina í því ljósi sem þeir eru.

Við verðum að horfast í augu við að næstu misserin verða ekki auðveld. Það mun reyna á þingmenn, sérstaklega þingmenn landsbyggðarkjördæmanna, að standa vörð um grunnþjónustuna á landsbyggðinni. Grunnþjónustu eins og heilbrigðisþjónustu, löggæslu og samgöngur svo að eitthvað sé nefnt.

 

Sólin rís aftur þó að það syrti að um stund

Niðurskurður er fyrirsjáanlegur í útgjöldum ríkisins og það verður sótt á um að skera fyrst niður á landsbyggðinni, eins og alltaf þegar ríkið grípur til niðurskurðar. Þá mun reyna á þá sem veljast til þingsetu að standa í lappirnar, beita hörku, staðfestu, reynslu og kænsku til að verja hagsmuni landbyggðarinnar. Verðandi þingmanna bíður því hörku vinna og sú vinna mun ekki alltaf verða dans á rósum. Þetta verður hörð varnarbarátta.

Það er rétt að kjósendur velti þesari staðreynd fyrir sér og hugsi til þess þegar þeir stilla upp á listann, því tilgangur prófkjöranna er jú fyrst og fremst að velja til starfa fólk sem getur tekist á við þau verkefni sem bíða.

Það er þó engan veginn svo að framundan sé eitthver alsherjar svartnætti þó að horfst sé í augu við þessar staðreyndir. Niðursveifla og bakslag tekur enda og þá koma fram mörg tækifæri til sóknar. Tækifæri sem þarf að grípa og nýta vel. Sólin rís alltaf aftur þó syrti að um hríð. Það skiptast alltaf á skin og skúrir í lífinu.

 

Stundur hefur “dallurinn” laskast en samt alltaf komist í höfm

Ég hef ýmsa fjöruna sopið á leið minni gegnum lífið. Siglt bæði gegnum lygna tjörn og úfinn sjó. Auðvitað hef ég stundum tekið rangann pól í hæðina, eins og gengur, en alltaf hef ég nú náð fleyi mínu að landi á endanum. Stundum hefur “dallurinn” auðvitað laskast aðeins í brotsjóunum en hann hefur þó alltaf náð að sigla á ný.

Ég hef tekist á við bæði góða og erfiða tíma. Hef tekist á við ýmis krefjandi verkefni, bæði stór og smá. Verið þátttakandi í stjórnmálum um langa hríð. Hef tekist á við ýmiskonar störf til lands og sjávar. Hef verið þátttakandi í atvinnulífinu og haft með höndum leiðtogahlutverk í rekstri. Ég tel því að sú reynsla sem ég hef aflað mér á þessari vegferð sé góður grunnur til að takast á við þau verkefni sem bíða þeirra sem taka sæti á alþingi í vor. Þess vegna ákvað ég að sækjast eftir 3. sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fer á laugardaginn.

 

Þingmenn eiga að vera heimamenn á öllum svæðum kjördæmisins

Ég tel mig hafa víðtæka þekkingu á málefnum kjördæmisins. Kem frá Vestmannaeyjum og þekki vel til sjávarsíðunnar. Hef síðustu ár búið á Selfossi og fylgst með þeim málum sem brenna til landsins. Ég tel það góðann kost að hafa þessi yfirsýn í kjördæminu ásamt góðum tengslum víðar um það.

Ég held ég taki ekki of stórt upp í mig þó að ég segist vera vinnusamur og vinni yfirleitt langan vinnudag og ég tel það kost fyrir þá sem sækjast eftir því að ná kjöri til alþingis að vera tilbúna í langan vinnudag. Í kjördæmi sem spannar hundruð kílómetra frá Hornafirði til Reykjaness og út til Eyja er vinnusemi nauðsynleg, til að hafa vilja og kraft til að sinna öllu þessu víðfema kjördæmi.

Þeir sem valdir verða til forystu í prófkjörinu á laugardaginn eiga að verða þingmenn alls kjördæmisins, frá smæstu byggðum til stærstu bæja, upp til sveita og niður til sjávar. Þeir eiga allsstaðar að líta á sig sem heimamenn en ekki fulltrúa einhverra ákveðinna svæða.

 

 Ég er tilbúinn í slaginn fyrir Suðurkjördæmi

Ég sækist eftir stuðningi í 3. sætið í prófkjörinu á laugardaginn. Ég er tilbúinn að takast á við þau verkefni sem bíða, með hag allra íbúa í kjördæminu að leiðarljósi. Ég er tilbúinn að taka þátt í verja hagsmuni íbúa Suðurkjördæmis og horfa fram á veginn í leit að tækifærum til sóknar, í þessu stóra kjördæmi sem er svo ríkt af allskyns náttúruauðlindum og hefur upp á að bjóða gríðarlega marga kosti til sóknar og atvinnusköpunnar á næstu árum.

Ég vonast eftir góðum stuðningi í 3. sætið og hvet ykkur til þátttöku í prófkjörinu á laugardaginn.

 

Grímur Gíslason

Greinarhöfundur sækist eftir 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica