Pistlar og pólitík
Merki Sjálstæðisflokksins
Merki Sjálstæðisflokksins

10.03.2009 Pistlar og pólitík

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

 

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fer fram laugardaginn 14. mars.

Í Austur Skaftafellssýslu verður kosið sem hér segir:

Höfn
Pakkhúsinu                                                    Klukkan 10 18

Nes
Mánagarði                                                      Klukkan 14 18

Öræfi
Hofgarði                                                         Klukkan 10 11

Suðursveit
Hrolllaugsstöðum                                            Klukkan 12 13

Mýrar
Holti á Mýrum                                                 Klukkan 14 15

Lón
Fundarhúsinu Lóni                                           Klukkan 16 17

 

Hverjir mega kjósa?

 a)  Allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi sem þar eru búsettir og náð hafa 16 ára aldri prófkjörsdaginn.

 b)  Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarrétt í Suðurkjördæmi við alþingiskosningarnar 2009 og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í kjördæminu fyrir lok kjörfundar.

- Athugið að þeir sem ekki eru Íslenskir ríkisborgarar og á aldrinum 16 – 18 ára, þ.e. þeir sem ekki eru flokksbundnir sjálfstæðismenn, þurfa að ganga í Sjálfstæðisflokkinn fyrir klukkan 17:00 fimmtudaginn 12. mars.

Hvernig á að kjósa?

Kjósa skal 6 frambjóðendur, hvorki fleiri en né færri. Kosið skal með því að setja tölustafina 1 til 6 fyrir framan nöfn frambjóðenda. Þannig skal kjósandi setja töluna 1 fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem hann óskar að hljóti fyrsta sætið í prófkjörinu, töluna 2 fyrir framan nafn þess sem hann vill að hljóti annað sætið í prófkjörinu, töluna 3 fyrir framan nafn þess sem hann vill að hljóti þriðja sætið í prófkjörinu og þannig koll af kolli þar til kosnir hafa verið 6 frambjóðendur.

Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla í Austur Skaftafellssýslu fer fram sem hér segir:

Sjálfstæðishúsinu, Kirkjubraut 3, Höfn í Hornafirði
Til og með föstudagsins 13. mars, virka daga klukkan 17 – 19

 

Nánari upplýsingar um prófkjörið má finna á profkjor.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica