Við eigum alltaf að vera óhrædd við að skoða hlutina í víðara samhengi
Atvinnuástandið brennur á mörgum um þessa mundir enda sjaldan eins margir atvinnulausir og nú. Við þetta verður ekki búið til lengdar, þar sem íslenskt hagkerfi hefur lengst af byggst á vinnuvilja fólksins í landinu. Með áframhaldandi háum vöxtum og mikilli verðbólgu á tala atvinnulausra jafnvel eftir að stórhækka, sem yrði til enn meira ójafnvægis milli afkomu fólks og skuldbindinga vegna húsnæðiskaupa. Nauðsynlegt er að bregðast við strax og gera fyrirtækjum kleift að standa við skuldbindingar sínar og gera rekstrarumhverfi þeirra viðunandi.
Grunn atvinnuvegirnir í Suðurkjördæmi eru sjávarútvegur,landbúnaður og ferðaþjónusta. Það er mat mitt að miklir möguleikar til að auka tekjur felist í að tengja ferðaþjónustu enn frekar við hina grunnatvinnuvegina. Með því að nota afurðir úr sjávarútvegi og landbúnaði til að skapa upplifun fyrir ferðamenn, aukum við möguleika á tekjum af ferðamennsku, án þess að kosta miklu til. Mikið hefur verið rætt um að auka verðmæti þess sem við lifum á í dag, en almenningur er orðinn langþreyttur á endalausu tali um nýsköpun án þess að eitthvað komi fram.
Áþreifanlega gott dæmi um nýsköpun er Tilraunaeldhús Matís á Hornafirði. Þar hefur verið sköpuð aðstaða fyrir frumkvöðla sem langar að prófa að búa til nýja afurð eða gera nýja hluti úr því sem fyrir er, án þess að þurfa að leggja út í mikinn kostnað til að uppfylla kröfur sem gerðar eru til matvælaframleiðslu. Þegar afurðin er í hendi og hægt að kanna viðbrögð neytandans án þess að byggja aðstöðuna frá grunni, er auðveldara fyrir frumkvöðulinn að meta hvort hún komi til með að skila því sem væntingar stóðu til.
Tilraunaveiðar á makríl á handfæri og sem síðan er reyktur í tilraunaeldhúsi Matís og smakkast afskaplega vel, er gott dæmi um nýsköpun alla leið frá náttúru til neytandans. Annað slíkt dæmi er Fab Lab smiðjan í Vestmannaeyjum, en þar gefst frumkvöðlum tækifæri til að vinna að hugmyndum sínum og framleiða þær, án mikils kostnaðar og þannig gert sér betri grein fyrir hvernig hönnunin lítur út í raun og veru. Á vef Impru er útskýring á fablap sú að Fab Labs er alþjóðlegt net stafrænna smiðja sem ýta undir nýsköpun með því að veita einstaklingum aðgang að stafrænum framleiðslutólum. Þetta hefur verið kallað annað skrefið í stuðningi við frumkvöðla .
Allt of lengi hefur verið hamast við að reikna út og setja upp í skýrslur viðskiptaáætlanir og plön sem mörg hver líta mjög vel út, en verða síðan samt ekki að veruleika, því frumkvöðullinn sjálfur hefur ekki enn 100% trú á hugmynd sinni og miklar fyrir sér að fara út í fjárfestingar til að prófa hvort hún gangi eftir. Með því að fjölga þeim stöðum sem styðja við hugmyndir frumkvöðla með áþreifanlegum hætti, sköpum við tækifæri til sjávar og sveita til nýsköpunar og vöruþróunar.
Við eigum alltaf að vera óhrædd við að skoða hlutina í víðara samhengi.
Ég Björn Ingi Jónsson sækist eftur 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi




Skrifa athugasemd