Heilbrigðisþjónustan
Björn Ingi Jónsson býður sig fram í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi
Heilbrigðismál eru mikilvægur málaflokkur og er heilbrigðisþjónusta eitthvað sem allir eiga að hafa jafna möguleika á að nálgast. Nú á tímum efnahagsþrenginga er fyrirsjáanlegt að gæta verður aðhalds í rekstri ríkisins. Þá er mikilvægt að ekki sé ráðist of harkalega með niðurskurðarhnífinn á heilbrigðisstofnanir. Að sjálfsögðu verður að gæta jafnræðis þegar dregið er saman í rekstri ríkissins, en engu að síður verður að horfa á hlutina í heilstæðu samhengi. Sameining heilbrigðisstofnana yfir mörg hundruð kílómetra landsvæði er að mínu mati afskaplega vafasamur sparnaður. Það er sjálfsagt hægt að sýna fram á það á blaði að svo og svo mikið sparist í krónum við að fækka framkvæmdastjórum en ég tel að tengsl yfirstjórnar við nærsamfélagið sé mikilvæg og nálægðin við daglegan rekstur gefi betri yfirsýn hvar hægt er að draga úr kostnaði án þess að þjónustan verði lakari á hverri stofnun fyrir sig. Nú orðið hvílir félagsþjónusta að miklu leiti á sveitafélögunum, en ég tel að með því að taka yfir fleiri verkefni sem eru nú á höndum ríkisins gefast aukin tækifæri til hagræðingar. Undanfarinn áratug hefur Sveitafélagið Hornafjörður verið með þjónustusamning um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu. Ég sit í bæjarstjórn sveitarfélagsins og þekki að reynsla okkar Hornfirðinga af samþættingu félagsþjónustu og heimaþjónustu heilbrigðisstofnunarinnar skilar betri nýtingu fjármuna og betri þjónustu. En þær kannanir sem gerðar hafa verið eftir að sveitarfélagið tók yfir reksturinn sýna að íbúar eru almennt mjög ánægðir með þjónustuna.
Við eigum alltaf að vera óhrædd við að skoða hlutina í víðara samhengi.
Ég Björn Ingi Jónsson sækist eftur 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi




Skrifa athugasemd