Kosning stendur yfir í opnu prófkjöri Samfylkingar
Opið prófkjör Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi er nú í fullum gangi. Prófkjörið fer fram á netinu og geta allir, sem hafa heimabanka, tekið þátt í gegnum netið. Þeir sem ekki eru netvæddir eða eru án netbanka geta hins vegar mætt á kjörstað í húsi Afls í dag laugardag frá kl. 12 – 18. Prófkjörið er öllum opið. Hvorki þarf að vera skráður í Samfylkinguna né undirrita stuðningsyfirlýsingu. Allir geta því haft áhrif.
Meðal frambjóðenda er Árni Rúnar Þorvaldsson formaður bæjarráðs og býður hann sig fram í 2.-4. sæti á listanum. Árni er með opna kosningaskrifstofu í Miðbæ og var mikill gestagangur þar í dag þegar fréttamaður leit við. Kvaðst hann vera bjartsýnn á útkomuna og vonaðist til þess að fólk myndi drífa sig á kjörstað eða taka þátt í gegnum netið heima hjá sér til þess að hafa áhrif á það hverjir skipuðu efstu sætin á listanum. Opið verður á kosningaskrifstofunni á laugardag frá kl. 10 – 18.
------------------------------------------------------------------------------------------
Hér er hægt að komast inn á Netkostningu Samfylkingarinnar
-----------------------------------------------------------------------------------------




Skrifa athugasemd