Kosningaþátttaka í netprófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi
Kl. 8:00 í morgun, 6.mars, voru rúmlega 500 manns búnir að kjósa í netprófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi en kosning stendur yfir til kl.18:00 laugardaginn 7. mars, bæði á netinu og hjá umboðsmönnum. Kosningin gengur samkvæmt áætlun eftir að leyst var úr lítilsháttar byrjunarörðugleikum í einum netbankanna.Íbúar Suðurkjördæmis sem vilja nýta lýðræðislegan rétt sinn til til að raða á lista Samfylkingarinnar fara inn á samfylking.is og þaðan á kjörsíðu Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi og fá allar upplýsingar um hvernig kosið er. Þar skráir viðkomandi sig til að taka þátt í netkosningu og fær kjörkóða sendan strax á netbanka og lýkur kosningu í beinu framhaldi.
Þeir sem ekki hafa aðgang að netbanka geta farið til umboðsmanna Samfylkingarinnar á fjölmörgun stöðum í kjördæminu og kosið hjá þeim kjördaga sem eftir eru, föstudag og laugardag. Upplýsingar um umboðsmennina og frambjóðendur er að finna á samfylking.is og í prófkjörsblaði sem dreift er á öll heimli í kjördæminu.
Samfylkingin í Suðurkjördæmi
Eysteinn Eyjólfsson sími: 698-1404



Skrifa athugasemd