Pistlar og pólitík
Andrés Sigurvinsson
Andrés Sigurvinsson

25.02.2009 Pistlar og pólitík

Andrés Sigurvinsson

framboð 1. -4. sæti Samfylkingin suðurkjördæmi

 

Ég undirritaður gef  kost á mér í 1.-4.  sæti  í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi 7. mars næst komandi.

Ég er 59. ára gamall Eyjamaður, búsettur á Selfossi og starfa sem verkefnisstjóri þar.  Málaflokkar mínir eru íþrótta- forvarna- tómstunda- og menningarmál hjá Sveitarfélaginu Árborg.

Samfélagið hrópar á breytingar í ljósi efnahagshrunsins, kallar á breytingar á starfsemi stjórnmálaflokka, krefst gegnsærri vinnubragða – grunngild skulu virt- frelsi, jafnrétti og bræðralag.

Aðal krafan er að heimilin í landinu verði varin með öllum tiltækum ráðum.  Höfuðstóll íbúðarlána lækkaður, skuldir minnkaðar og afskrifaðar.  Sama á við með fyrirtækin. Takast af hörku á við aukið atvinnuleysi.  Byggja upp nýtt trúverðugt Ísland þar sem allir eiga sömu möguleika.

Ég sem félagshyggjumaður vill taka þátt í að skapa hér nýja hugsun, ný vinnubrögð segja skilið við gömlu flokkseigendafélögin. Landið verði eitt kjördæmi. Stjórnlagaþing og ný stjórnarskrá er krafan. 

Ég vil leggja mitt af mörkum og er til þjónustu reiðubúinn.  Þess vegna gef ég kost á mér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi þann 7. mars.

Andrés Sigurvinsson.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica