Lúðvík Júlíusson
framboð 4. sæti Samfylkingin suðurkjördæmi
Undanfarin 7 ár hef ég starfað á sjó og notið þess tækifæris að sjá atburði síðustu ára hér á landi úr ákveðinni fjarlægð. Hér ríkti mikið sýndargóðæri sem einungis virtist stafa af peningaprentun og útlánum. Hætta er á að góðæri af þessu toga endi með kreppu og aukinni misskiptingu líkt og við okkur blasir nú. Um þetta ritaði ég nokkrar blaðagreinar því mér leist ekki á það Ísland sem við mér blasti. Þær leiðir sem hefði mátt fara til að koma í veg fyrir að bólurnar yrðu stærri voru meðal annars minni ríkisútgjöld, minni útlán bankanna með lægri veðhlutföllum og minni skattalækkunum. Það fór hins vegar þannig að ríkið hélt áfram að blása út, útlán jukust, skattar voru lækkaðir hjá þeim sem mestar höfðu tekjurnar og seðlabankinn missti stjórn á verðbólgunni. Þetta endaði svo með hruni hagkerfisins síðasta haust. Afleiðingar hrunsins blasa við, mikið atvinnuleysi, aukin misskipting, eignaupptaka og vantraust á stjórnmálamenn.
Nú þarf að leiðrétta misskiptinguna, efla atvinnu, koma á stöðugleika, endurreisa hagkerfið með nýjum gildum og koma á trausti á milli stjórnmálamanna og almennings sem hvarf í haust. Þessu treysti ég jafnaðarmönnum best fyrir.
Til að efla atvinnu í landinu þá þarf að styðja við nýsköpun og auðvelda frumkvöðlum að komast í samband við fjármagn. Í þessu tilfelli gerir margt smátt eitt stórt. Það verður að varast að einbeita sér of mikið á stór verkefni. Til eru ótal einstaklingar og fyrirtæki með frábærar nýjungar sem stjórnvöld þurfa að nálgast og virkja. Tækifærin eru allsstaðar! Skapa þarf störf sem skapa enn fleiri störf til frambúðar!
Það þarf að endurreisa hagkerfið á nýjum grunni með nýjum gildum. Stjórnmálamenn verða að tryggja stöðugleika með gagnsæjum hætti og varast ‘patentlausnir’; í atvinnumálum sem geta ógnað stöðugleika og kynnt undir verðbólgu. Góð gildi eru hógværð, nægjusemi og virðing. Það á ekkert að vera til sem heitir ‘löglegt en siðlaust’;.
Stjórnmálamenn eru þjónar fólksins í landinu og þurfa að sýna auðmýkt, virðingu og þjóðinni hollustu í öllum sínum störfum. Stjórnmálamenn verða að líta á tekjur ríkisins sem afrakstur vinnu fólksins í landinu. Ekki síst þess vegna þarf að fara vel með fjármagnið og sýna stöðugt aðhald.
Ég er fylgjandi því að sækja um aðild að ESB og sjá hvað slíkur samningur færir okkur ásamt því að taka upp evru í þeim tilgangi að ná langtíma stöðugleika í atvinnulífinu. ESB og evra eru hins vegar leiðir að því markmiði að auka velferð í landinu en ekki endanlegt markmið. Það þarf enn að leysa innlend vandamál eftir sem áður.
Í kjölfar efnahagshrunsins í haust hafa orðið til ný og erfið verkefni sem þarf að leysa. Ég býð fram krafta mína til þeirra uppbyggingastarfa sem framundan eru og býð mig því fram í 4. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.
Ég er fæddur 4. mars 1976. Ég er sonur Júlíusar Stefánssonar frá Húsavík og Gerðar Lúðvíksdóttur frá Reykjavík. Systkini mín eru Styrgerður Hanna Jóhannsdóttir kennari, búsett á Hornafirði, Katrín Júlíusdóttir þingkona, búsett í Kópavogi og Stefán Júlíusson sjómaður, búsettur í Berlín. Stefán er tvíburabróðir minn.
Fyrstu ár ævi minnar bjó ég í Reykjavík en fluttist fljótlega í Kópavoginn. Ég lauk stúdentsprófi í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1996. Að því loknu hóf ég nám í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands en hætti því 1997 og snéri mér að flugnámi. Ég fluttist til Bandaríkjanna 1999 og lauk atvinnuflugnámi árið 2000. Ég fluttist aftur til Íslands að loknu flugnáminu og hóf störf í fiskvinnslu í Sandgerði ásamt bróður mínum og föður. Ég fluttist til Sandgerðis haustið 2001. Í upphafi ársins 2003 snéri ég mér að sjómennsku og hef starfað við það síðan.




Skrifa athugasemd