Pistlar og pólitík
Eygló Harðardóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson
Eygló Harðardóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson

12.02.2009 Pistlar og pólitík

Framsókn með aukakjördæmisþing í Hvoli Hvolsvelli, 14. febrúar

Undirbúningur fyrir Alþingiskosningar er sem óðast að komast á fullt skrið.  Svo á við hjá Framsóknarmönnum sem öðrum.  Fulltrúar frá  Framsóknarfélagi Austur Skaftfellinga munu um helgina, þ.e. laugardaginn 14. febrúar n.k. mæta á aukakjördæmisþing framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi.  Þingið verður haldið í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli og hefst það kl. 13

:00. Á þinginu verður ákveðið með hvaða hætti frambjóðendur verða valdir á framboðslista flokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningar þann 25. apríl. Kjörnir fulltrúar framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi hafa atkvæðisrétt á þinginu.

 

Þegar hafa tveir aðilar gefið kost á sér til forystu á framboðslista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, en það eru þau Eygló Harðardóttir, alþingismaður og Sigurður Ingi Jóhannsson, oddviti í Hrunamannahreppi.

 

Stjórnin

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica