Fundur Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins vel sóttur
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins fundar nú víða um land. Síðastliðinn föstudag hélt nefndin fjölmennan fund á Kaffihorninu hér á Hornafirði og kynnti starf Evrópunefndarinnar. Þar var rætt um þær breytingar sem orðið hafa í íslensku samfélagi undanfarið, kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu og þá möguleika aðra sem eru í stöðunni fyrir Ísland. Einnig var rætt um þróun heimsmála til framtíðar, bæði í Evrópu og heiminum öllum.
Tilgangur fundaherferðarinnar er að leita eftir sjónarmiðum fólks um allt land og sköpuðust líflegar umræður að framsögu lokinni. Framsögumaður var Árni Sigfússon Reykjanesbæ en hann er varaformaður Evrópunefndarinnar.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Evrópunefndarinnar www.evropunefnd.is eða xd.is



Skrifa athugasemd