Vinstri Grænir halda fund á Hornafirði
Atli Gíslason þingmaður Vinstri hreyfingarinnar Græns Framboðs kemur til Hornafjarðar og heldur almennan fund um efnahagsmálin í Pakkhúsinu sunnudaginn 12. október næstkomandi. Atli mun flytja framsögu og sitja fyrir svörum. Hann er ekki þekktur fyrir það að sitja á skoðunum sínum og hefur oftar en ekki staðið í ræðustól á Alþingi til þess að verja lítilmagnann. Efnahagsmálin eru að sjálfsögðu í brennidepli og á hverjum degi koma nýjar fréttir um vanda bankanna, bæði hér heima og erlendis.
Það verður örugglega bæði gaman og fróðlegt að heyra hvað Atli Gíslason hefur um málin að segja og ekki síður gott tækifæri til þess að spyrja hann spjörunum úr um þær lausnir sem hann og Vinstrihreyfingin Grænt framboð standa fyrir.




Skrifa athugasemd