Pistlar og pólitík
Árni Rúnar Þorvaldsson
Árni Rúnar Þorvaldsson
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar

10.04.2008 Pistlar og pólitík

Árni Rúnar Þorvaldsson aðstoðarmaður Lúðvíks Bergvinssonar alþingismanns

Lúðvík Bergvinsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi hefur ráðið Árna Rúnar Þorvaldsson sem aðstoðarmann sinn. Hér er um þriðjungsstarfshlutfall að ræða með aðsetur úti í kjördæminu þannig að hér er ekki um neina búferlaflutninga að ræða segir Árni Rúnar, þetta er í samræmi við lög sem nýlega voru samþykkt á Alþingi um að landsbyggðarþingmenn fengju aðstoðarmenn í sínu umdæmi. .Það er svo þingmannsins og aðstoðarmannsins að móta þetta nýja starf sem við sjáum fyrir okkur sem tengingu milli fólksins í kjördæminu og þingmannsins. Starf aðstoðarmannsins verður fyrst og fremst fólgið í að hjálpa og aðstoða þingmanninn við þingmál og önnur tilfallandi störf tengd þinginu. En ekki síst er starfið fólgið í því að upplýsa um það sem um er að vera í kjördæminu hverju sinni og hann ætti líka að geta auðveldað fólkinu þar að koma sínum málum á framfæri við þingmanninn.
Árni segir að sér lítist mjög vel á þetta nýja starf og hlakkar til að takast á við það og vonar að þetta styrki og efli samstarf og samskipti milli þingmannsins og fólksins í kjördæminu.
Ég tel að þetta starf falli vel að þeim störfum sem ég sinni sem bæjarstjórnarmaður og auðveldi samband og samskipti við þingmenn okkar. Hins vegar er ljóst, segir Árni að þetta kemur til með að hafa umtalsverð áhrif þá kennslu sem ég hef unnið við síðustu ár og ég mun minnka verulega við mig á þeim vettvangi.




Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica