Beðið og beðið.
Svar við grein Árna Rúnars Þorvaldssonar
Ég varð undrandi þegar ég las grein sem birtist fyrir nokkru á netmiðlinum hornafjordur.is eftir Árna Rúnar Þorvaldsson um þjónustusamning vegna rekstur heilbrigðis- og öldrunarmála og að nú sé eingöngu beðið eftir að fjármálaráðherra geri eitthvað í málinu.
Þjónustusamningur mikill ávinningur fyrir íbúa.
Ég held að flestir sem til þekkja viti að það hefur verið eitt af mínum hugðarefnum sem bæjarstjórnarmaður að hægt væri að veita betri og fjölbreyttari þjónustu á sviði heilbrigðis- og öldrunarmála í Hornafirði heldur en þekkist í öðrum sveitarfélögum. Ég tel ég að okkur hafi tekist það á þeim árum frá því skrifað var undir fyrsta reynslusamninginn 1995, sem síðan hefur svo verið framlengdur eða endurnýjaður. Við höfum haft mikla sjálfstjórn á þessum málum heima í héraði og margt hefur áunnist. Má þar nefna að komið hefur verið upp góðri aðstöðu fyrir sjúkraþjálfara, heimaþjónusta og heimahjúkrun hefur verið aukin, en það gefur fleiri eldri borgurum tækifæri til að búa lengur heima, dagvist aldraðra hefur verið sett á laggirnar og tekist hefur að halda fæðingum heima í héraði. En erfitt hefur verið er að tryggja stöðugleika í læknaþjónustu sem er landlægur vandi og kunnugir telja að eigi ekki eftir minnka á næstu árum. Sjálfstjórn okkar heimamanna í þessum málaflokki hefur verið farsæl og það er samdóma álit þeirra utanaðkomandi aðila sem hafa skoðað reksturinn að Heilbrigðisstofnunin sé vel rekin og með gott starfsfólk.
Áhyggjur af nýjum samningi.
Undanfarið hef ég haft áhyggjur af því að við missum þennan samning frá okkur. Frá því undirbúningur hófst á vegum sveitarfélagsins við gerð nýs þjónustusamnings hefur litlu sem engu miðað. Vil ég kenna þar um vinnubrögðum meirihlutans núverandi og að utanumhald um verkefnið hefur verið ákaflega losaralegt. Búið er að gera könnun meðal íbúa um hug þeirra til heilbrigðismála og fengnar hafa verið úttektir frá Ríkisendurskoðun, Capacent vegna læknamála og Landlæknisembætti. Stundum þegar ég hef spurt um stöðu mála hefur svarið verið að beðið sé eftir hinu eða þessu. Stundum að beðið sé eftir væntanlegri könnun eða úttekt og nú síðast beðið vegna þess að ekki hafi fengist full greiðsla fyrir hjúkrunarrýmin. Aldrei neitt sem snýr að undirbúningi hér heima. Engin svör fást frá meirihlutanum um hvernig samning við viljum.
Ríkisendurskoðun ekki hlutlaus aðili.
Vandræðin, sem Árni Rúnar talar um, byrjuðu þegar skýrsla Ríkisendurskoðunar var birt. Þrátt fyrir að margt gagnlegt sé í þeirri skýrslu sem ætti að hjálpa til við að gera enn ýtarlegri samning þá komu þar fram atriði sem urðu til þess að greiðslur samkvæmt samningi voru lækkaðar. Embættismenn ríkis eru yfirhöfuð ekki hrifnir af að verið sé að færa verkefni til annarra, í þessu tilviki til sveitarfélagsins og nýta eðlilega svona tækifæri. Það hefur ekki verið litið á Ríkisendurskoðun sem hlutlausan aðila í málefnum sem varða samskipti ríkis og sveitarfélaga. En þegar svona var komið tók bæjarstjóri þá ákvörðun á að hætta samningaviðræðum við ríki, þótt um tvö óskyld mál væri að ræða. Hvorki bæjarráð eða bæjarstjórn var höfð með í ráðum þegar viðræðum við ríkið var slitið.
Fjármálaráðherra hefur sagt að það mál er varðar greiðslur til HSSA verði leyst og ætti það ekki að standa í vegi fyrir vinnu við nýjan samning.
Upphlaup fyrir alþingiskosningarnar í fyrra.
Vorið 2007 var starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar búið að leggja mikla vinnu ásamt nefndarfólki í Hör við að vinna texta og tillögur í samningsdrög til að gera þau betri og skýrari. Tveim dögum fyrir alþingiskosningar voru haldnir fundir í skyndi bæði í Hör og bæjarráði til að meirihlutinn gæti samþykkt heimild fyrir bæjarstjóra til að skrifa undir nýjan samning við ráðherra. En þá stóð til að skrifa undir eldri drög sem var hálfunnið plagg og öllu sem fagaðilar voru búnir var að leggja vinnu í kastað út og engar skýringar gefnar. Fjármunir mun lakari en í fyrri samningi og ljóst að fæðingar væru ekki tryggðar og önnur þjónusta myndi skerðast ef sá samningur hefði orðið að veruleika. Einhverra hluta vegna gugnaði meirihlutinn á síðustu metrunum og skrifaði ekki undir. Sem betur fer. Því er ég mjög hissa að sjá skrif forseta bæjarstjórnar um að útrunninn samningur hafi verið mjög lélegur, en samt var hann tilbúinn að skrifa undir mun lakari samning síðastliðið vor.
Stillum saman strengi og ljúkum nýjum samningi.
Við sjálfstæðismenn höfum lagt ítrekað fram tillögur um að bæjarstjórn öll og starfsmenn heilbrigðisstofnunarinnar legðust á eitt og færu yfir samninginn, kæmu fram með skýr samningsdrög og að ljúka þessu mikla hagsmunamáli. Samningar sem þessir geta verið mjög erfiðir og því mikilvægt að hann sé vel unninn af heimaaðilum. Það er allt of mikið í húfi til að meirihlutinn geti leyft sér að vera í þessum skrípaleik. Við berum þá skildu við íbúa sveitarfélagsins að vinna saman og standa saman í þessu máli og ljúka nýjum samningi til hagsbóta fyrir samfélagið.
Halldóra Bergljót Jónsdóttir
Oddviti Sjálfstæðismanna i Bæjarstjórn Hornafjarðar.




Skrifa athugasemd