Fjölbreytni og framsækni – lífæð fyrir blómlega byggð.
Ásta Þorleifsdóttir jarðfræðingur skipar 1. sæti fyrir Íslandshreyfinguna í Suðurkjördæmi
Íslandshreyfingin leggja áherslu á að koma eftirfarandi verkefnum í framkvæmd í Skaftafellssýslum samgöngum, mennta- og atvinnumálumá næsta kjörtímabili.
Öruggar samgöngur:
Góðar samgöngur eru forsendur byggðar og atvinnuuppbyggingar á Íslandi. Stóriðjuhlé gefur svigrúm fyrir stórátak í samgöngumálum. Það er ljóst að afar brýnt er að ljúka við Hringveginn með ásættanlegum hætti og tryggja öryggi vegfarenda. Forgangsverk er að útrýma tugum af einbreiðum brúm og hefja undirbúning að göngum undir Lónsheiði en leiðin um Hvalsnesskriður er óforsvaranleg. Að sama skapi er tímabært að velta því fyrir sér hvort ekki beri að huga á nýjan leik að sjóflutningum þar sem vegir landsins eru ekki hannaðir með tilliti til þungaflutninga og þeir valda því verulegu tjóni á malbiki og vegöxlum auk þeirra hættu sem öðrum stafar af þessum risastóru flutningabifreiðum. Þegar arðsemi sjóflutninga er könnuð má ekki gleyma því að umtalsverðu fé er veitt úr ríkissjóð til viðhalds hafnarmannvirkja og þær fjárfestingar ber að nýta með skynsamlegum hætti.
Fjölbreytt og framsækið atvinnulíf
Öflugt atvinnulíf á landsbyggðinni er forgangsmál ef halda á landi í byggð. Örugg upplýsingaveita,.háhraðanet, er forsenda nýsköpunar og flutnings starfa út á land auk þess að vera hornsteinn í öflugu skólastarfi frá grunn- til háskóla.
Með því að styðja við frumkvæði og nýta þekkingu heimamanna í samstarfi við vísindamenn má skapa umhverfi fyrir eftirsóknarverð störf sem gefa ungu fólki ný tækifæri í heimabyggð. Með enn meiri stuðningi við Nýheima, frumkvöðla- og háskólasetur og fá til starfa listamenn, frumkvöðla og sérfræðinga að rannsóknum og hagnýtingu náttúruauðlinda er eflaust hægt að finna ótal tækifæri sem eru gulls ígildi.
Gríðarlegur möguleikar eru að opnast fyrir alla uppbyggingu í fræðslu- og afþreyingarferðaþjónustu með tilkomu Vatnajökulsþjóðgarðs. Með réttu má gera ráð fyrir að fjöldi ferðamanna muni margfaldast sem kallar á aukna þjónustu á öllum sviðum. Jökla- og loftslagsrannsóknasetur mun laða að sér vísindamenn úr öllum heimshlutum. Fólk mun streyma að til að upplifa áhrifamátt gróðurhúsaáhrifanna á jökla heimsins sem eru hvergi sýnilegri en einmitt hér í jaðri Vatnajökuls. Með hækkandi hitastigi lengist ferðamannatímabilið og störfin verða heilsársstörf. Stórskorið landslagið er auðlegð fyrir kvikmyndagerð. Smábátaútgerð á sumrum með handfæra og sjóstangveiðiheimildum mun endurvekja líf á bryggjum og opna möguleika á nýliðun. Allt kallar þetta á fleira fólk og um leið aukið öryggi. Það er fyrirsjáanlegt og við því er skylt að bregðast.
Öryggi og heilsa
Hvergi á landinu er lengra á sjúkrahús og því brýnt að bæta aðstöðu heilsugæslunnar og fá lækna til starfa. Það er þörf á endurskoða allt fyrirkomulag björgunarstarfa á Íslandi og staðsetja björgunarþyrlu á Höfn. Þyrlan myndi þjóna sjófarendum,vegfarendum og ört vaxandi fjölda ferðamanna sem ferðast um óbyggðir og jökla við misjöfn skilyrði allan ársins hring.
Fyrirmyndar Ísland
Við viljum réttlát og sanngjarnt samfélag, þar sem einstaklingarnir fá notið sín, mennta- og velferðarkerfið fyrir alla og náttúran óspillt.
Ísland er eitt ríkasta land í heimi og allir eiga að njóta ávaxtanna. Vilji er allt sem þarf.
Kjósum fyrir framtíðina, kjósum Íslandshreyfinguna.
- Ásta Þorleifsdóttir




Skrifa athugasemd