Prófkjör að skella á.
Snemma í vor fór ég á námskeið á vegum Framsóknarflokksins. Þetta var stjórnmálanámskeið sem og námskeið í framkomu, ræðumennsku og fleira. Leigubílstjórinn sem keyrði mig á staðinn hafði tuðað heil ósköp yfir framsókn án þess að rökstyðja eitt né neitt. Á námskeiðinu kom í púlt Sigurður Eyþórsson þáverandi framkvæmdastjóri flokksins, og bað alla sem þarna voru, fullur salur af fólki á öllum aldri, sem hefðu einhvern tímann verið fundarstjórar að standa upp. Ég trúði ekki mínum eigin augum þegar allir sem þarna voru stóðu upp. Hverjir eru fengnir til að vera fundarstjórar?, jú það er fólk sem flestir fundarmenn treysta til að gæta hagsmuna sinna og að öll sjónarmið fái notið sín. Þeir njóta virðingar í samfélaginu sem heilsteyptir einstaklingar...
Þarna var sem sagt samankominn heill salur af traustsins verðu fólki.
Allar mínar efasemdir hurfu og ég vissi að ég var þar sem ég vildi vera.
Þar sem líður að prófkjöri þá hef ég verið að hugsa hvað væri sterkast fyrir okkur sem lið sem vænlegt væri til árangurs. Hópur frambjóðenda þarf að vera breiður með allskyns manngerðum, þar þarf m.a. formanninn, framkvæmdamanninn, hugmyndasmiðinn, fínpússarann og helst nokkra af hvoru, ef hópur sem inniheldur þessar týpur vinnur saman þá er það staðreynd að þeim hópi er flest mögulegt. Það er vottað af sálfræðingum.
Sá sem þykist fullnuma hefur hafnað dýrmætu tækifæri til að verða meiri.
Það er ykkar að velja hér og mér finnst úrvalið bara gott.
Við getum tuðað og kvartað eða við getum unnið og leyst málin.
Gagnrýni er góð og okkar helsta verkfæri til að efla okkur, læra og bæta
Þar eigum við framsóknarfólkið sóknarfæri.
Vandamál eru verkefni. Velgengni er langhlaup.
Ég hef hvatt frambjóðendur til samstöðu að loknu prófkjöri og mynda sterkan hóp fólks sem er tilbúið að skella sér í vinnugalla og vinna saman að verðugum verkefnum næstu árin.
Mig langar að vera með og því langar mig að biðja ykkur um að styðja mig í 5 sæti í prófkjörinu 20.jan. næstkomandi.
Hvert atkvæði skiptir máli.
Lilja Hrund Harðardóttir.




Skrifa athugasemd