Pistlar og pólitík
Lilja Hrund Harðardóttir
Lilja Hrund Harðardóttir
Lilja Hrund Harðardóttir

03.01.2007 Pistlar og pólitík

Ég er í framboði

Hver er ég ? Ég heiti Lilja Hrund Harðardóttir.  Sambýlismaður minn er Kristinn Þór Óskarsson og saman eigum við þrjú börn. Ég bý á Höfn í Hornafirði,  þar sem ég rek eigið fyrirtæki, Vinnustaðanudd ehf.  Ég er menntuð nuddari og búfræðingur. Hvers vegna? Jú, ég er alltaf með skoðanir á öllum hlutum og lít svo á að vandamál séu  verkefni og að samvinna sé  skemmtileg.  Þess vegna er það áhugamál mitt að vinna með  fólki  að bættu samfélagi.  Atvinna ,menntun, þjónusta = grunnur sem hver staður og byggðarkjarni þarf að hafa í lagi.  Getur verið verkefni sem seint  tekur enda,  en ekki gengur að gefast upp. Það þarf alltaf að leita leiða til lausna.

Forsenda þess að ná árangri  er að hafa yfirsýn yfir heildina í stað þess að hver og einn syndi í hringi í sinni fötu, á hverjum stað, í hverjum málaflokki. Einnig þarf að vera í góðu sambandi við það sem aðrir eru að gera í kringum okkur. Það er langvænlegast að hjálpast að  hafa hópinn sem breiðastan til að tryggja að öll sjónarmið nái inn á borð til þeirra sem  taka ákvarðanirnar.

 

Við sem íbúar hér í Suðurkjördæmi berum sjálf ábyrgð á að koma nýju fólki að til áhrifa á  búsetuskilyrði okkar.  Það þarf að vinna og leggja á sig til að ná fram breytingum til hins betra og framförum þar sem þær vantar.  Það vil ég reyna.

Kjördæmið er stórt og leiðir  til bóta  og styrkingar sem henta smærri stöðum vel eru ekki endilega þær sömu og henta stærri stöðum  í þenslu.

 

Síðastliðin ár hefur verið ör framför, stækkun og breytingar á mörgum sviðum þjóðfélagsins.  Þeir sem stjórna hafa oft á tíðum þurft að hafa hraðar hendur til að  halda utanum allt það nýja sem þurft hefur að byggja upp hér á landi.   Líkt og að prjóna sokka, ef  það er gert í of miklum flýti, er hætta á lykkjufalli.

Ég tel víst að nú sé ekki seinna vænna en að fara að stoppa í göt hagkerfis okkar, eins og reyndar er víða byrjað, til að stuðla að sem mestu jafnvægi í atvinnumálum, menntamálum, samgöngumálum og heilbrigðismálum um land allt.  Stjórnsýslan þarf að smella sér í súpermann- vinnugallann, deila út verkefnum og auka tekjustofna sveitarfélaga verulega því þau eru tilbúin.  Sveitarstjórar í dag eru almennt vel menntaðir með gott starfsfólk á bak við sig og því ekkert að  vanbúnaði við að taka á sig aukin verkefni.

 

Lilja Hrund Harðardóttir

Bíður sig fram í 5-6 sæti

Í prófkjöri framsóknar í Suðurkjördæmi.

20. janúar nk.


 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica