Pistlar og pólitík
Kári Sölmundarson
Kári Sölmundarson
Kári Sölmundarson

10.11.2006 Pistlar og pólitík

Mér hleypur kapp í kinn

Ágætu félagar, Nú á síðustu dögunum fyrir prófkjör Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi eru kjósendur að gera upp hug sinn. Sem frambjóðandi í þessu prófkjöri er ég þakklátur fyrir að hafa kynnst öllu því ágæta fólki sem ég hef hitt á þessum vettvangi. Það er ekki endilega auðvelt fyrir nýliða að stíga fram á völlinn, en mér hleypur kapp í kinn því ég finn í vissum skilningi, sem Hornfirðingur, fyrir tilfinningu útvarðarins við endimörk víðfeðms kjördæmis. Sjálfstæðistefnan er sá hvati sem knýr mig áfram og þar er góður málstaður að fá að verja, fyrir hönd þessa stóra kjördæmis.

Eftir að hafa gert víðreist á undanförnum vikum hef ég komist að því að hér í kjördæminu eru mörg mál sem augljóslega þarf að leysa. Sem frambjóðandi í prófkjöri sem er forval á þingmönnum til Alþingis verður ekki hjá því komist að hafa einnig skoðanir á málum er snerta alla þjóðina. Ég hef rekið mína baráttu með þetta í huga og ég finn að þau mál sem ég hef sett á oddinn eiga sér hljómgrunn í kjördæminu. Ég verð að vona að skortur á greinaskrifum eftir mig sem fjalla um fjölbreiða vegi (nýyrði!) dragi ekki úr trú ykkar á að ég geti unnið að góðum verkum fyrir ykkur.

Það eru fáir þingmenn í dag sem starfað hafa um eitthvert skeið við grunnatvinnuveg þjóðarinnar. Ég er tilbúinn, eftir 20 ára starf í sjávarútvegi, að starfa á vettvangi þjóðmála og að vinna ykkur gagn. Að leiðarljósi hef ég heiðarleika, samviskusemi, trúfestu og réttsýni til að standa undir væntingum sem ég tel að kjörnir fulltrúar þjóðarinnar skuli hafa. Nú er komið að okkur, Hornfirðingar, að fylgja vel á eftir og koma ykkar manni á lista. Mætum og kjósum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.

Kári Sölmundarson
Frambjóðandi í 3. - 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica