Pistlar og pólitík
Grímur Gíslason
Grímur Gíslason
Grímur Gíslason

09.11.2006 Pistlar og pólitík

Vonandi eigum við samleið

Framundan er prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi þar sem kjósendur velja frambjóðendur á lista fyrir þingkosningarnar næsta vor. Það er því í höndum kjósenda að setja listann þannig saman að útkoman verði sterkur og sigurstranglegur listi, sem endurspeglar á sem bestan hátt þetta víðfema kjördæmi, mismunandi áherslur og skoðanir. Nauðsynlegt er að á listann veljist fólk af báðum kynjum, með víðtæka þekkingu og ólíkan bakgrunn. Þá er jafn nauðsynlegt að endurnýjun eigi sér stað og nýju fólki með hugsjónir og kraft gefið tækifæri. Eftir víðtæka hvatningu úr kjördæminu ákvað ég að gefa kost á mér í prófkjörinu og sækist þar eftir stuðningi í 3. - 5. sætið. Ég tel mig hafa reynslu, þekkingu, brennandi áhuga og baráttuanda til að takast á við þetta krefjandi verkefni og vinna með og fyrir fólkið, sem í kjördæminu býr og með mismunandi hagsmuni og þarfir íbúa hinna dreifðu byggða að leiðarljósi.

Ég hef m.a. starfað sem sjómaður, kennari og blaðamaður og starfa nú sem framkvæmdastjóri innflutnings- og þjónustufyrirtækis. Þá hef ég starfað ötullega á vetvangi Sjálfstæðisflokksins í áratugi. Ég tel að reynsla mín úr þessum störfum, sem og úr skóla lífsins, sé góður undirbúningur fyrir nýjar og krefjandi áskoranir.
Í stjórnmálum er nauðsynlegt að stöðug endurnýjun eigi sér stað og ferskir vindar fái að blása en slíkt er ætíð vænlegt til árangurs. Ég stíg nú inn á svið stjórnmálanna í Suðurkjördæmi og vona að ég geti verið sá sem hleypt getur krafti í sókn fyrir Suðurkjördæmi, næg eru verkefnin.
Ég leita eftir stuðningi íbúa í Suðurkjördæmi í 3. - 5. sæti í komandi prófkjöri og get lofað því að ég mun vera sýnilegur, virkur og öflugur baráttumaður fyrir málefnum kjördæmisins sem og öðrum góðum málum til framfara og heilla fyrir okkur. Ég er tilbúinn til að vinna með ykkur og fyrir ykkur, því ég veit að með samstöðu og krafti má ná miklum árangri fyrir Suðurkjördæmi um alla framtíð.
Ég vona að við eigum samleið.

Kveðja
Grímur Gíslason

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica