Pistlar og pólitík
Hlynur Sigmarsson
Hlynur Sigmarsson
Hlynur Sigmarsson

30.10.2006 Pistlar og pólitík

Gefur kost á sér í 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi

Hlynur Sigmarsson gefur kost á sér í 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Hann er 37 ára gamall og á tvö börn. Hlynur býr í Vestmannaeyjum og starfar þar sem deildarstjóri hjá Fiskistofu. Hann hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og hefur starfað jafnt til sjós og lands. Hann hefur m.a. starfað hjá Sparisjóði Vestmannaeyja í sex ár, skattstofu Vestmannaeyja, ÍBV og verið til sjós á bátum sem og togurum.

Hlynur hefur verið mjög virkur í félagsstarfi ÍBV í Vestmannaeyjum. Var í unglingaráði félagsins í 2 ár. Stjórnarmaður í handknattleiksdeild kvenna í 5 ár, formaður stjórnar handknattleiksdeildar kvenna í 1 ár og hefur verið formaður að sameinaðri handknattleiksdeild ÍBV síðan 2004. Þann tíma sem Hlynur hefur starfað í handboltanum hefur árangur handknattleiksliðanna verið frábær og þá sérstaklega kvennaliðsins þar sem hann hefur lengstum alið manninn.

Helsta ástæða þess að Hlynur hefur ákveðið bjóða sig fram er sú að hann vill berjast fyrir hagsmunum Suðurkjördæmis á þingi og ætlar sér að leggja ríka áherslu á efla hag kjördæmisins í atvinnu- og samgöngu- og íþróttamálum. Það á að vera grundvallar mannréttindi okkar að framboð atvinnu sé gott í okkar kjördæmi og að við getum ferðast í okkar landshluta með skjótum, greiðum og öruggum hætti. Þjóðfélagið og ríkisvaldið þarf einnig að styðja vel við bakið íþróttum sem þroska og efla okkar æsku.

Til að berjast fyrir þessu þurfum við öflugan málsvara fyrir okkur á þingi. Mann sem berst fyrir okkar málefnum fyrst og fremst. Það mun Hlynur gera.

Kjósum því Hlyn í 2. sæti lista Samfylkingarinnar.

- Stuðningsmenn

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica