Pistlar og pólitík
Guðrún Erlingsdóttir
Guðrún Erlingsdóttir
Guðrún Erlingsdóttir

26.10.2006 Pistlar og pólitík

Þakkir til Hornfirðinga

Síðastliðinn sunnudag og mánudag heimsótti ég ásamt manni mínum Hornafjörð Ég var uppnumin eftir þá ferð. Það var sérkennileg tilfinning að koma í annað sinn til Hornafjarðar en líða eins og heima hjá sér. Fyrsta skemmtilega upplifunin fyrir utan Jökulsárlón var Þórbergsetrið, safn sem einfaldlega er ekki hægt að keyra framhjá. Snilldarhugmynd að láta húsið líta út eins og bækur í hillu. Mjög skemmtileg uppsetning á safninu og áhugavert í alla staði. Það var auðsjáanlegt að kraftur og frumkvæði er til staðar hjá eigendum. Samvinna við Nýheima hefur líka skilað árangri. Nýheimar eru frábært dæmi um klasasamstarf og ég get tekið ofan fyrir Hornfirðingum hvernig þeir hafa byggt upp Nýheima og starfa saman. Menningartengd ferðaþjónusta er vaxtarbroddur í hverju byggðarlagi.

Hornfirðingar eru komnir á skrið í vaxtarsamningi þrátt fyrir að formleg vinna við hann sé ekki hafin. Það vakti líka athygli mína hversu vel Hornfirðingum tekst að sjá um málefni fatlaðara og heilbrigðisþjónustuna Nærþjónustan á betur heima í héraði. Eitt var það sem ég upplifði mjög sterkt á Hornafirði en það var gott viðmót fólks. Ég upplifði Hornfirðinga lífsglaða og þægilega. Takk fyrir mig.

Guðrún Erlingsdóttir
Höfundur sækist eftir 3. -4. sæti á lista
Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi 4. nóv. n.k

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica