Pistlar og pólitík
Guðrún Erlingsdóttir
Guðrún Erlingsdóttir
Guðrún Erlingsdóttir

22.10.2006 Pistlar og pólitík

Guðrún Erlingsdóttir fundar með Hornfirðingum

Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá nokkrum manni að prófkjör flokkanna eru í fullum gangi þessa dagana. Opið prófkjör Samfylkingarinnar þar sem allir kosningabærir menn í Suðurkjördæmi hafa rétt til þess að kjósa án þess að skuldbinda sig flokknum á nokkurn hátt fer fram laugardaginn 4. nóvember. Nú eru frambjóðendur á fullu að kynna sig og sín stefnumál. Guðrún Erlingsdóttir er einn þeirra frambjóðenda sem hefur áhuga á því og ætlar hún því að hitta Hornfirðinga sunnudaginn 22. október kl. 16:30 húsi Vökuls við Víkurbraut ásamt Ragnheiði Hergeirsdóttur. Þar ætlar Guðrún að spjalla við kjósendur um það sem þeim brennur á hjarta. Hún ætlar líka að skýra frá sínum áherslumálum og kynnast því hvað það er helst sem brennur á íbúum þessa svæðis. Þetta er gott tækifæri fyrir kjósendur til þess að koma og heyra hvað Guðrún hefur að segja um þau málefni sem á okkur brenna.

Guðrún Erlingsdóttir er formaður Verslunarmannafélags Vestmannaeyja og fulltrúi Vestmannaeyjalistans í bæjarstjórn í átta ár. Hún sækist eftir 3. ? 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í komandi Alþingiskosningum.


- Stjórn Samfylkingarinnar á Hornafirði

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica