Ragnheiður Hergeirsdóttir fundar með kjósendum
Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá nokkrum manni að prófkjör flokkanna eru í fullum gangi þessa dagana. Opið prófkjör Samfylkingarinnar þar sem allir kosningabærir menn í Suðurkjördæmi hafa rétt til þess að kjósa án þess að skuldbinda sig flokknum á nokkurn hátt. Nú eru frambjóðendur á fullu að kynna sig og sín stefnumál. Ragnheiður Hergeirsdóttir er einn þeirra frambjóðenda sem hefur áhuga á því og ætlar hún því að hitta kjósendur sunnudaginn 22. október kl. 16:30 húsi Vökuls við Víkurbraut. Þar ætlar Ragnheiður að spjalla við kjósendur um það sem brennur á hjarta. Hún ætlar líka að skýra frá sínum áherslumálum og kynnast því hvað það er helst sem brennur á íbúum þessa svæðis. Þetta er gott tækifæri fyrir kjósendur til þess að koma og heyra hvað Ragnheiður hefur að segja um þau málefni sem á okkur brenna.
Ragnheiður Hergeirsdóttir er oddviti Samfylkingarinnar í Sveitarfélaginu Árborg. Hún hefur verið leiðtogi Samfylkingarinnar þar á síðasta kjörtímabili og því sem nú er nýhafið. Í prófkjörinu sækist Ragnheiður eftir 2. ? 3. sæti á framboðslistanum.
Stjórn Samfylkingarinnar á Hornafirði




Skrifa athugasemd